15 metra reglan: Gjaldskráin lækkuð og tveir kostir boðnir 30. júní 2011 15:01
Reykjavíkurborg hefur ákveðið að lækka gjaldskrá fyrir viðbótarþjónustu vegna sorpíláta sem standa lengra en 15 metra inni á lóð. Gjaldið lækkar úr 4.800 krónum niður í 4.000 krónur á ári á hvert sorpílát miðað við losun á tíu daga fresti. „Gjaldið verður aðeins 2.000 krónur á ári ef losað er á 20 daga fresti,“ segir ennfremur í tilkynningu frá borginni en þetta var samþykkt á fundi borgarráðs í dag. Þá segir að ítarlegar mælingar og innleiðing 15 metra viðbótarþjónustunnar á síðustu mánuðum hafi leitt í ljós mikið af verðmætum upplýsingum um sorphirðuna í borginni. „Getur Reykjavíkurborg hagnýtt sér þessar upplýsingar í framtíðinni til mikillar hagræðingar í sorpþjónustunni,“ segir einni en að mati borgaryfirvald getur breytt sorphirða sparað borginni umtalsverða fjármuni á hverju ári. „Reynt verður að hafa þjónustuna eins þægilega og sveigjanlega fyrir íbúana og mögulegt er.“Tveir kostir í boði Boðið er upp á tvo valkosti í sorphirðu; annars vegar losun á 10 daga fresti og hins vegar 20 daga fresti. „Þeir íbúar sem velja síðari kostinn geta sparað helming í sorphirðugjöldum. Hvetur Reykjavíkurborg alla notendur sorpþjónustunnar til að kynna sér vel alla valkosti varðandi sorphirðu og flokkun sorps í þeim tilgangi að spara heimilunum og borginni mikið fé. Aukin flokkun kemur umhverfinu einnig til góða þar sem minna sorp fer til urðunar.“ Þá segir að þeir sem kjósi að hafa tunnur sínar lengra inni á lóð en 15 metra hafi einnig þann möguleika að trilla tunnum sínum sjálfir fram á sorplosunardögum svo þeir þurfi ekki að greiða gjaldið. „Nú hefur sorpþjónustan ákveðið að losa allar tunnur burtséð frá því hvar þær standa á losunardögum því fólk getur auðveldlega gleymt því að trilla með tunnurnar. Viðbótargjald mun aðeins leggjast á ef misbrestur á trillinu verður ítrekaður.“ Samkvæmt tilkynningunni hafa mælingar leitt í ljós að 30% sorpíláta í borginni eru staðsett lengra en 15 metra frá götu og hafa um þrjátíu prósent þeirra þegar óskað eftir viðbótarþjónustu. Viðbótargjaldið mun leggjast á 1. ágúst nk. Hægt er að sækja um breytingar á allri þjónustu í sorphirðu á netfanginu sorphirda@reykjavik.is .
Mest lesið Fékk besta nafnið frá frú Vigdísi Innlent Sakborningur í pottamálinu grunaður um tilraun til manndráps Innlent Í eðli okkar að fylgjast með náunganum Innlent Vildu að Navalní yrði hluti af fangaskiptunum sögulegu Erlent Sérsveitin skarst í leikinn þegar unglingar slógust í Mjódd Innlent Hvalfjarðargöngin opnuð á ný Innlent Lést af völdum sprengju sem var falin fyrir tveimur mánuðum Erlent Strandavegur í sundur og ferðamaður festi sig í flýti Innlent Sjálfstæðismenn taki „óviðunandi“ fylgi alvarlega Innlent „Hér er um fullkomlega eðlileg viðskipti að ræða“ Innlent Fleiri fréttir Grunuð um að flytja fíkniefni til landsins með tólf ára son með í för Það séu vonbrigði ef fyrirtæki hækki verð úr hófi Kveikur frá Stangarlæk fallinn Hvalfjarðargöngin opnuð á ný Strandavegur í sundur og ferðamaður festi sig í flýti Auknar líkur á að eldgos hefjist á næstu dögum Allir ættu að komast leiðar sinnar þrátt fyrir viðvörun Telur stöðu heimsmála hafa áhrif á fylgið Aukin skjálftavirkni, óviðunandi fylgi og óveður í Eyjum Sakborningur í pottamálinu grunaður um tilraun til manndráps Sjálfstæðismenn taki „óviðunandi“ fylgi alvarlega Sérsveitin skarst í leikinn þegar unglingar slógust í Mjódd Auknar líkur á skriðuföllum um helgina Úrkoman í júlí sló met Fólk eigi að gera ráð fyrir innbrotum Í eðli okkar að fylgjast með náunganum Fékk besta nafnið frá frú Vigdísi Hópar slógust en enginn ætlar að kæra „Hér er um fullkomlega eðlileg viðskipti að ræða“ Hlý og góð tilfinning að mæta á Bessastaði Borinn niður af klettaborginni VG mælist með 3,5 prósent Furðar sig á kjötafurðarstöðvunum Frú forseti, klútaveisla og undrandi bændur Fólk keyri ekki fyrr en tólf tímum eftir síðasta sopa „Mýkri leiðir í hörðum heimi“ Tjá sig ekki eftir fullyrðingar ráðuneytisins í nafnabreytingarmálinu Máttu ekki synja kvikmyndagerðarmanni um eftirvinnslustyrk Fólk á förnum vegi: Ein felldi tár og önnur mjög spennt fyrir Höllu Halla Tómasdóttir orðin sjöundi forseti lýðveldisins Sjá meira