Tónlist

Paul McCartney með vírus

Paul McCartney tilkynntiað hann ætlaði að hætta við fyrirhugað tónleikaferðalag sitt um Japan vegna veikinda.

Fyrrum Bítillinn fékk vírus í síðustu viku og nú segja talsmenn Bítilsins að hann hafi ekki heilsu til að koma fram í Japan.

Í tilkynningu segir að læknar hafi ráðlagt McCartney að halda sig heima og hann hefur hætt við alls fjóra tónleika, en talsmenn McCartney, sem er orðinn 71. árs gamall, vilja ekkert tjá sig frekar um veikindin.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.