Joan Canellas skoraði sigurmark Spánar á lokasekúndu leiksins. Green hafði þá staðið í markinu í nokkra stund eftir að hafa leyst Niklas Landin af hólmi og staðið sig vel. En hann varð að játa sigraðan að þessu sinni.
Sjá einnig: Umfjöllun: Danmörk - Spánn 24-25 | Cañellas hetja Spánverja gegn Dönu
„Það er erfitt að tapa leikjum, sérstaklega þegar það er komið út í útsláttarkeppnina. Þá fær maður ekki annað tækifæri,“ sagði Green.
„Þetta er okkar fyrsti tapleikur í keppninni og hann tapaðist með einu marki sem var skorað á síðustu sekúndu leiksins. Það er auðvitað hræðilegt og maður brosir ekki við tilhugsunina.“
„En við vissum að þetta yrði erfitt gegn Spáni sem er með gott lið. Spánverjar eru klókir - þeir spila hægan handbolta en skyndilega koma þeir inn af miklum sprengikrafti og skapa sér góð færi sem þeir nýta sér.“
„Það var einmitt það sem gerðist í gær. Canellas nýtti sér sinn styrk og sprengikraft til að skora sigurmarkið í gær,“ sagði Green.

„Ég komst að þeirri niðurstöðu að ég var í réttu horni en boltinn fór því miður inn. Ég hefði gjarnan viljað verja þetta skot en svona er handboltinn bara stundum.“
Sjá einnig: Guðmundur: Sorglegur endir
Hann segir að varnarmenn danska liðsins hafi reynt að koma í veg fyrir að Canellas tæki skotið en að það dugði ekki til. „En hann er afar sterkur leikmaður og sérstaklega góður í að halda áfram eftir snertingu. Við reyndum að stöðva hann en það bara tókst ekki. Stundum þarf maður bara að hrósa honum fyrir vel unnið verk enda frábær leikmaður.“

„Þetta er erfitt núna en ég held að eftir góðan nætursvefn munum við ná að hreinsa hugann og spila vel.“
Green hefur staðið sig vel með danska landsliðinu en aðalmarkvörðurinn, Niklas Landin, er að mörgum talinn einn besti markvörður heims. Green segir þó að það sé ekki erfitt að vera varamaður fyrir hann.
„Það er ekki erfitt því ég er vanur því. Ég veit að hann er einn besti markvörður heims. Það er oft erfitt að sitja á bekknum en það er mitt hlutverk í liðinu. Það er svo undir mér komið að koma inn og standa mig eins vel og ég get.“