Lífið

James Bond á hælum íslenskra hvalveiðimanna

Gunnar Bergmann tekur ekkert mark á gagnrýni leikarans Pierce Brosnan, sem vill að Bandaríkjamenn beiti Íslendinga viðskiptaþvingunum vegna hvalveiða. fréttablaðið/vilhelm
Gunnar Bergmann tekur ekkert mark á gagnrýni leikarans Pierce Brosnan, sem vill að Bandaríkjamenn beiti Íslendinga viðskiptaþvingunum vegna hvalveiða. fréttablaðið/vilhelm
„Brosnan hefur sinn skilning á þessu, sem ég er auðvitað ekki sammála," segir Gunnar Bergmann, framkvæmdastjóri Hrefnuveiðimanna ehf.

Leikarinn Pierce Brosnan birti í vikunni bréf þar sem hann gagnrýnir stefnu Íslendinga í hvalveiðum harðlega. Hann skorar á fólk að slást í lið með sér og hvetja Barack Obama, forseta Bandaríkjanna, til að beita Íslendinga viðskiptaþvingunum þangað til hvalveiðum verði hætt. Brosnan er þekktastur fyrir hlutverk sitt sem James Bond í fjórum myndum um njósnarann á árunum 1995 til 2002. Síðustu ár hefur hann verið eitt af andlitum náttúruverndarsamtakanna Natural Resources Defense Council og lengi haft horn í síðu íslenskra hvalveiðimanna. Það liggur því beinast við að spyrja Gunnar hvernig er að vera með njósnara hennar hátignar á hælunum?

„Þetta skiptir okkur engu máli," segir hann. „Ég held að þetta sé fjórða eða fimmta árið í röð sem þessi leikari reynir eitthvað að kvabba um hvalveiðar, sem hann hefur mjög takmarkað vit á. Hann fer mjög frjálslega með staðreyndir. Hann heldur til dæmis fram að við séum að veiða dýr sem eru í útrýmingarhættu. Það tekur enginn vísindamaður í heiminum undir að hrefnan sé í útrýmingarhættu."

Brosnan er afar harðorður í bréfi sínu og fer fram á Íslandi sé refsað harðlega fyrir hvalveiðarnar. „Berjumst við þá, aftur og aftur," segir hann og ítrekar að Íslendingar hætti ekki að veiða hval fyrr en þeir eru neyddir til þess. Gunnar segir málið snúast um peninga fyrir samtökin sem Brosnan er í forsvari fyrir. „Hann kemur fram í sjónvarpi, fær umfjöllun og athygli úti í heimi," segir hann. „Svo fara samtökin að safna peningum."

En ætla íslenskir hvalveiðimenn að svara Brosnan í erlendum fjölmiðlum?

„Við værum að skjóta okkur í fótinn ef við ætluðum að svara einhverju svona, sem er ekki neitt. Þá eykur það umfjöllunina og ég held að það sé það sem þetta fólk vill."

atlifannar@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×