Bíó og sjónvarp

Fékk yfir sig olíugusu við tökur á sjón­varps­þáttum

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Jennifer Aniston í hlutverki Alex Levy. 
Jennifer Aniston í hlutverki Alex Levy.  Getty

Bandaríska leikkonan Jennifer Aniston var við tökur á sjónvarpsþáttunum The Morning Show í New York-borg um helgina þegar hún fékk yfir sig gusu af olíu. 

Olíugusan var hluti af atriði í fjórðu þáttaröð sjónvarpsþáttanna, sem sýndir eru á AppleTV+ streymisveitunni. 

Vegfarendur sem urðu vitni af tökunum segja að Alex Levy, persóna Aniston, hafi verið í hópi mótmælenda og gusan hafi sýnilega reitt Levy til reiði. 

Ásamt Aniston fer stórleikkonan Reese Witherspoon með aðalhlutverk í þáttunum, sem fjalla um líf þáttastjórnendanna Alex Levy og Bradley Jackson. Fyrsta þáttaröð The Morning Show kom út árið 2019 og er sú fjórða í bígerð. Umfjöllun um þættina má nálgast á vef People






Fleiri fréttir

Sjá meira


×