Matur

„Smá stress en alltaf jafn skemmti­legt“ að elda ofan í Ramsay

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Eigendur Þrastalundar ásamt stjörnukokkinum Gordon Ramsay í dag.
Eigendur Þrastalundar ásamt stjörnukokkinum Gordon Ramsay í dag. Instagram

Þriðja árið í röð lét stjörnukokkurinn Gordon Ramsay sjá sig á veitingastaðnum Þrastalundi í Grímsnesi í dag. Eigandi staðarins segir örlítið kvíðavaldandi en alltaf jafn gaman að fá Ramsay í heimsókn. 

„Hann segist alltaf dýrka að vera héraa, það er alla vega það sem maður heyrir,“ segir Dagný Sif Jónsdóttir einn eigenda Þrastalundar í samtali við fréttastofu. 

Hún segir Ramsey og veiðifélaga hans nýta aðstöðuna í Þrastalundi til að fá sér í gogginn og skipta yfir í veiðigallann áður en haldið er út að á. Það hafi þeir gert síðustu tvö ár líka. 

„Það er auðvitað alltaf smá stress en alltaf jafn skemmtilegt að fá þá í heimsókn. Þeir eru svo ótrúlega yndislegir og almennilegir. Maður er einhvern veginn alltaf í skýjunum þegar þeir eru búnir að vera hérna,“ segir Dagný.

Hér að neðan má sjá myndir úr heimsóknum Ramsay í Þrastarlund í fyrra og hittiðfyrra. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×