Lífið

Smokkar og tepokar konunglega merktir

MYNDIR/Cover Media
Í meðfylgjandi myndasafni má sjá brota brot af því sem framleitt hefur verið í tilefni af konunglegu brúðkaupi Vilhjálms og Kate Middleton sem fram fer á morgun.

Eins og sjá má á myndunum eru smokkar, dúkkur, nuddolíur, brúðkaupspizzur, te, bjór og ælupokar sérmerktir brúðhjónunum fáanlegir í verslunum í tilefni morgundagsins.

Stöð 2 mun að sjálfsögðu gera þessu brúðkaupi aldarinnar ríkuleg skil.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×