Innlent

Flug á ekki að raskast í dag

Mynd/Pjetur
„Menn eru ennþá að ræða saman og vonandi boðar það eitthvað gott,“ segir Kjartan Jónsson framkvæmdastjóri Félags íslenskra atvinnuflugmanna. Kjaradeila flugmanna hjá Icelandair var rædd hjá Ríkissáttasemjara í gærkvöldi og var fundi ekki lokið þegar Fréttablaðið fór í prentun.

Í gærkvöldi var gert ráð fyrir að ekkert flug Icelandair yrði fellt niður í dag vegna yfirvinnubanns flugmanna sem raskað hefur flugi undanfarna daga. - þeb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×