Lífið

14 ára parkour snillingur sýnir listir sínar

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Það er orðin árleg hefð hjá mörgum sem stunda parkour íþróttina að útbúa myndband í lok árs yfir afrek ársins sem er að líða. Einn þeirra er hinn fjórtána ára gamli Orri Starrason sem hefur æft íþróttina í þrjú ár hjá Gerplu í Kópavogi. Hann og félagar hans hittast reglulega á ýmsum stöðum á höfuðborgarsvæðinu og leika þar listir sínar fjarri vökulum augum foreldra sinna.

Iðkendum parkour íþróttarinnar hefur fjölgað hratt undanfarin ár og bjóða nú nokkur félög á höfuðborgarsvæðinu og nágrenni þess upp á parkour æfingar auk fimleikafélags Akureyrar.

Afrakstur ársins 2014 má sjá þessu myndbandi Orra en áhugasamir geta einnig gerst áskrifendur af YouTube rás hans sem ber heitið orriFREERUN.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×