Lífið

Getur þú giskað á lagið?

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Leikarinn Rúnar Freyr fer iðulega á kostum í dansleik sínum í Spurningabombunni á Stöð 2. Þá sýnir leikarinn einskonar látbragðsdans sem er vísun í texta á þekktum íslenskum dægurlögum.

Hér að ofan má sjá eina slíka getraun og við spyrjum ykkur, kæru lesendur: Vitið þið hvaða lag þetta er?

Svör óskast í athugasemdakerfinu hér að neðan, en lausnin verður birt á morgun.

Nú styttist í að Spurningabomban komi aftur á dagskrá Stöðvar 2. Logi Bergmann stýrir þáttunum. Næsti þáttur verður sýndur þann 30. janúar næstkomandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×