Lífið

Valið var á milli hamingjusams barns eða ekki

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Ronja Sif fæddist drengur en var aðeins fimm ára þegar foreldrar hennar ákváðu að leyfa henni að lifa sem stelpa.
Ronja Sif fæddist drengur en var aðeins fimm ára þegar foreldrar hennar ákváðu að leyfa henni að lifa sem stelpa. Samsett

„Síðan við hittumst síðast er ég búinn með fjórar hormónasprautur,“ segir Óliver Elí, eitt barnanna sem kemur fram í heimildarþáttunum Trans börn á Stöð 2. Í kvöld verður sýndur þriðji og síðasti þátturinn í þessari vönduðu heimildarþáttaröð, strax á eftir fréttum.

Í þessum síðasta þætti verður meðal annars sýnt áfram frá sögu hans og fá áhorfendur að sjá áhrif krosshormónameðferðarinnar sem hann gengur nú í gegnum. 

Í Trans börn hefur fjórum íslenskum fjölskyldum verið fylgt eftir yfir tveggja ára tímabil. Allar fjölskyldurnar eiga það sameiginlegt að innan þeirra er barn sem upplifir sig í öðru kyni en því sem þeim var úthlutað við fæðingu.

Klippa: Í þriðja þætti af Trans börn

Fordómafullir netverjar

Sigrún Ósk Kristjánsdóttir umsjónarkona þáttanna sagði í viðtali í Ísland í dag í vikunni að áður en fyrsti þátturinn var sýndur hafi hún séð ýmis fordæmafull ummæli á netinu.

„Þegar það var tilkynnt að þessir þættir væru á leiðinni í loftið sá maður skiptar skoðanir og allskonar misgáfulegar athugasemdir sem sýndi það og sannaði að það var aldeilis þörf á því að fjalla um þessi mál, því fólk er að misskilja margt. Og stundum finnst manni eins og fólk sé að ákveða að misskilja.“

Hún bætti svo við að sumt fólk sé hreinlega bara fordómafullt og láti út úr sér hluti sem það veit ekkert um.

„Eftir að þættirnir fóru í loftið hef ég bara fengið jákvæð viðbrögð enda eru þessar fjölskyldur þannig að það er ekki annað hægt en að halda með þeim.“

Foreldrarnir sem tóku þátt í þessu verkefni hafa sagt að þau voni að viðtölin í Trans börn opni umræðuna. Síðan fyrsti þátturinn var sýndur hefur verið fjallað mikið um málefni trans barna, bæði vegna þáttanna og þeirrar staðreyndar að Landspítalinn lagði niður trans teymið á BUGL, eitthvað sem verður hugsanlega endurskoðað.

Óliver Elí er nú byrjaður í krosshormónameðferð og segir frá því í þætti kvöldsins.Samsett

Afneitun var fyrsta viðbragð

Í þætti kvöldsins er einnig rætt við Ronju Sif og fjölskyldu hennar. Ronja Sif fæddist drengur og var aðeins fimm ára þegar foreldrar hennar ákváðu að leyfa henni að lifa sem stelpa.

„Valið er í raun á milli hamingjusams barns eða ekki,“ segir móðir hennar um þessa ákvörðun.

„Mín viðbrögð voru náttúrulega í raun afneitun í upphafi,“ segir faðir Ronju.

„Ég ætla náttúrulega að standa með barninu mínu. Að vilja barninu sínu það besta er náttúrulega bara að leyfa því að vera það sem það er.“

Þriðji þáttur af Trans börn er á dagskrá Stöðvar 2 klukkan 19:05 í kvöld. Framleiðandi þáttanna er Sveinn Benedikt Rögnvaldsson, Sigrún Ósk Kristjánsdóttir sér um umsjón og klippingu annast Fannar Scheving Edwardsson. Friðrik Friðriksson sá um myndatöku. Næsti þáttur er á dagskrá Stöðvar 2 næsta sunnudag strax á eftir fréttum.


Tengdar fréttir

Kveið mest fyrir því að segja mömmu

Trans börn er vönduð ný heimildaþáttaröð í þremur hlutum þar sem fjórum íslenskum fjölskyldum er fylgt eftir yfir tveggja ára tímabil. Allar fjölskyldurnar eiga það sameiginlegt að innan þeirra er barn sem upplifir sig í öðru kyni en því sem þeim var úthlutað við fæðingu.

Vonar að viðtölin opni umræðuna

Magnús Valgeirsson, faðir Alex Grétars sem sagði sögu sína í þættinum Trans börn síðasta sunnudag, segir að fjölskyldan hafi nær eingöngu fengið góð viðbrögð við þættinum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.