Tónlist

Samdi lag um sprautufíkil

Birgir Örn Steinarsson hefur samið lag um sprautufíkil.
Birgir Örn Steinarsson hefur samið lag um sprautufíkil. Fréttablaðið/vilhelm
Popparinn Birgir Örn Steinarsson , sem gerði garðinn frægan með hljómsveitinni Maus, frumflutti nýtt lag í Stúdentakjallaranum á fimmtudaginn.

Lagið heitir Hvíta hávíraða blóð og fjallar um HIV-smitaðan sprautufíkil. Eftir að hann flutti lagið hafði prestur samband við hann og bað hann um að spila lagið á uppákomu sem verður haldin í næstu viku til að hvetja almenning til blóðgjafar.

Samkvæmt Facebook-síðu Bigga þáði hann boðið með þökkum.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.