Lífið

Dimma lýsir yfir stuðningi við Ívu

Jakob Bjarnar skrifar
Ingó Geirdal segir blasa við að Íva hefði, vegna tæknilegra mistaka í Söngvakeppninni, átt að fá að endurtaka flutning sinn.
Ingó Geirdal segir blasa við að Íva hefði, vegna tæknilegra mistaka í Söngvakeppninni, átt að fá að endurtaka flutning sinn.

Hljómsveitin Dimma hefur lýst yfir stuðningi við málstað Ívu en Vísir greindi frá því í gær að Íva hafi sitthvað við framkvæmd og viðbrögð Ríkisútvarpsins ohf. að athuga. Í atriði hennar í Söngvakeppninni var míkrófónn þeirrar sem syngur sópran í lagi hennar batteríislaus og heyrðist því ekki. Um er að ræða leiðandi söng og ljóst að flutningurinn varð ekki eins og efni stóðu til. Íva segir viðbrögð forsvarsmanna einkennast af undanbrögðum og hálfsannleik. Íva hefði kosið að fá að endurflytja lagið en reyndar einkenndist úrslitakvöld Söngvakeppninnar af tæknilegum mistökum.

Ingó Geirdal, gítarleikari hljómsveitarinnar Dimmu, sem öttu kappi við Daða og gagnamagnið í úrslitum, segir í athugasemd við þá frétt Vísis að tæknileg mistök í myndvinnslu hafi vissulega truflað flutning DIMMU-manna í útsendingunni, líkt og komið er inná í athugsemdakerfinu.

„Við vissum hinsvegar ekki af því fyrr en eftir á og það voru vonbrigði, því við vorum sáttir að öllu öðru leiti,“ segir Ingó. Hann bætir þá við:

„En mikilvæga rödd vantaði í flutningin hjá Ivu og því hefði verið eðlilegt að þær fengju að flytja lag sitt aftur. Ég dáist að því æðruleysi og fagmennskunni sem þær sýndu á meðan útsendingu stóð.“

Ingó segir Iva magnaða söngkona sem hefur á örskömmum tíma eignast aðdáendur út um allan heim. Svo framtíð hennar er björt og Ingó hlakkar til að fá að fylgjast með henni.

„Það var heiður fyrir mig og Stefán Jakobsson að fá að taka með henni lagið á RÚV um daginn og mér þykir vænt um að það sé nú til á upptöku. Áfram Iva!“

Hér fyrir neðan má svo sjá flutning Ingós, Stefáns Jakobssonar söngvara Dimmu og Ívu sem fluttu lag U2 á dögunum, sem vakti mikla athygli.


Tengdar fréttir

Íva segir forsvarsmenn RÚV fara með rangt mál

Íva Marín Adrichem, sem keppti á úrslitakvöldi Söngvakeppninnar í gærkvöldi með lag sitt Oculis Videre, er verulega ósátt við vinnubrögð hjá starfsfólki Ríkisútvarpsins. Þrátt fyrir að hafa komið því á framfæri að hljóðnemi lykilraddar í bakröddum væri rafhlöðulaus hefði ekki verið brugðist við.

Íva sendir frá sér myndband við Oculis Videre

Íva Marín Adrichem hefur sent frá sér tónlistarmyndband við lagið Oculis Videre sem hún mun flytja á úrslitakvöldi Söngvakeppninnar í Laugardalshöll á laugardaginn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×