Jafntefli ekki ólíkleg niðurstaða Tómas Þór Þórðarson skrifar 10. desember 2016 06:00
Manchester United vann síðast heimaleik í ensku úrvalsdeildinni 24. september þegar liðið lagði Englandsmeistara Leicester. Sama dag vann Tottenham sigur á nýliðum Middlesbrough á útivelli sem er einmitt síðasti útivallarsigur Spurs á tímabilinu í ensku úrvalsdeildinni. Þessi tvö lið mætast í stórleik á sunnudaginn. Ekkert hefur gengið hjá United í deildinni að undanförnu en liðið er búið að gera þrjú jafntefli í röð og vinna aðeins tvo af síðustu ellefu leikjum sínum. Baráttunni um Englandsmeistaratitilinn er meira og minna lokið eftir fjórtán umferðir og eltingaleikurinn við Meistaradeildina strax orðinn erfiður. Síðan United vann Leicester er það búið að gera fjögur jafntefli á heimavelli í röð gegn Stoke, Burnley, Arsenal og West Ham. United er búið að gera sex jafntefli í deildinni í vetur, jafnmörg og Tottenham en þau eru með flest jafnteflin af sex efstu liðunum. Tottenham-menn voru jafntefliskóngarnir af efstu sex liðunum á síðustu leiktíð en þeir gerðu þrettán jafntefli og eru nú þegar komnir með sex. Miðað við gengi þessara liða að undaförnu og erfiðleika þeirra í að klára leiki þyrfti að ekki að koma neinum neitt sérstaklega á óvart ef jafntefli yrði niðurstaðan á Old Trafford á sunnudaginn. Bæði lið koma inn í leikinn á sigurbraut. United vann Zorya í Evrópudeildinni á fimmtudaginn og tryggði sér sæti í 32 liða úrslitum Evrópudeildarinnar. Það sama gerði Tottenham með því að vinna CSKA Moskvu, 3-1, í lokaumferð riðlakeppni Meistaradeildarinnar en þar hafnaði Spurs í þriðja sæti í sínum riðli og féll niður í Evrópudeildina. United er aðeins með 21 stig eftir fjórtán leiki sem er versti árangur liðsins á þessu stigi í Úrvalsdeildinni eftir þetta margar umferðir.
Enski boltinn Mest lesið Klopp ráðinn til Red Bull en skýr klásúla í samningnum Fótbolti „Fyrir mig er mikilvægt að liðið geri það sem við biðjum um“ Körfubolti Dómarar í ævilangt bann eftir kynlífsmyndband Fótbolti „Sóknin alls ekki klár hjá okkur“ Körfubolti „Ég veit að næsta lyftingaræfing verður öflug hjá þeim“ Handbolti GAZið: „Þegar svona mikil velgengni er, þá kemur smá doði í mannskapinn“ Körfubolti Valsmenn lágu í valnum eftir góða byrjun Handbolti Á skotskónum í framrúðubikarnum Enski boltinn Beeman með sýningu í fyrsta sigri nýliðanna Körfubolti Dagskráin í dag: Nágrannaslagur af bestu gerð áður en umferðin öll verður gerð upp Sport Fleiri fréttir Félögunum refsað en Jackson sleppur Á skotskónum í framrúðubikarnum Lineker gefur lítið fyrir slúðursögur um framtíð sína Man City og enska úrvalsdeildin segjast bæði hafa borið sigur úr býtum Hætti á samfélagsmiðlum og hættir ekki að skora Onana haldið oftast hreinu Ofurvaramaðurinn Duran fær nýjan sex ára samning Næstu vikur gríðarlega mikilvægar fyrir Ten Hag „Bara lygarar og svindlarar sem segja að hann sé vandamálið“ Man United ekki byrjað verr síðan 1989 Hemp í sögubækurnar og Man City á toppinn Ten Hag: Erum allir á sömu blaðsíðu Ótrúleg endurkoma Brighton Forest fékk stig manni færri Markalaust á Villa Park Van Nistelrooy hræddur um að hann verði álitinn hafa stungið Ten Hag í bakið Markaskorarinn Kovačić: „Engir auðveldir leikir í þessari deild“ Óttast að Alisson sé frá næstu vikurnar Pickford bjargaði stigi Meistararnir lentu undir en unnu samt Skytturnar komu til baka gegn Dýrlingunum „Okkur er sama hvað öðrum finnst um okkur“ Liverpool með fjögurra stiga forskot á toppnum Sjáðu fáránleg mistök markvarðar Leeds Ratcliffe um Ten Hag: „Ekki mín ákvörðun“ „Þá er ég mjög heimskur þjálfari“ Samherji Stefáns Teits í átta leikja bann fyrir að bíta mótherja Trúir ekki skýringum og tippar á rifrildi við Rashford Eigandi Nottingham Forest ákærður af enska knattspyrnusambandinu Valinn í landsliðið í fyrsta sinn í sjö ár Sjá meira