Bíó og sjónvarp

Kvikmynd Elfars Aðalsteins verðlaunuð í Þýskalandi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Á myndinni situr Elfar fyrir svörum eftir sýningu myndarinnar á Mannheim-Heidelberg kvikmyndahátíðinni.
Á myndinni situr Elfar fyrir svörum eftir sýningu myndarinnar á Mannheim-Heidelberg kvikmyndahátíðinni.

Kvikmyndin End of Sentence, í leikstjórn Elfars Aðalsteins, fékk á dögunum sérstök dómnefndarverðlaun (Special Jury Awards) á 68. alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Mannheim-Heidelberg í Þýskalandi.

Hátíðin er ein elsta og stærsta kvikmyndahátíð Þýskalands en um fimmtíu þúsund gestir sækja hana árlega heim.

Kvikmyndin hefur undanfarna mánuði verið sýnd á alþjóðlegu kvikmyndahátíðunum í Edinborg, Tókýó, Tallinn og Stokkhólmi ásamt því að vera opnunarmynd RIFF nú í haust.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.