Körfubolti

Haukur Helgi skilaði sex stigum í tapi

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Haukur Helgi Pálsson
Haukur Helgi Pálsson vísir/getty

Haukur Helgi Pálsson og félagar í MoraBanc Andorra töpuðu örugglega fyrir Baskonia í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld.

MoraBanc Andorra byrjaði betur og leiddi eftir fyrsta leikhluta en í kjölfarið tóku heimamenn við sér og unnu að lokum öruggan sigur með sautján stiga mun, 84-67.

Haukur Helgi skoraði sex stig ásamt því að gefa fimm stoðsendingar og taka tvö fráköst á þeim nítján mínútum sem hann spilaði í leiknum.

MoraBanc er í ellefta sæti deildarinnar eftir fimmtán leiki, hefur unnið sjö leiki en tapað átta leikjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×