Fótbolti

Vilja halda Diallo út tímabilið en hann og United eru á öðru máli

Anton Ingi Leifsson skrifar
Diallo í leik gegn Midtjylland í Meistaradeildinni fyrr á leiktíðinni.
Diallo í leik gegn Midtjylland í Meistaradeildinni fyrr á leiktíðinni. Jonathan Moscrop/Getty Images

Macnhester United festi í október kaup á vængmanninum Amad Diallo frá Atalanta en hann átti svo að ganga í raðir Manchester í janúar.

Nú vill ítalska liðið hins vegar halda Diallo hjá félaginu og vonast sjórinn Gian Piero Gasperini til þess að hann verði lánaður til baka út leiktíðina.

Stjörnuleikmaðurinn Papu Gomez er nefnilega kominn út í kuldann eftir stríð við Gasperini og leita Atalanta menn því eftir eftirmanni hans.

„Við erum með Amad Diallo sem gæti verið góð lausn í stað Papu Gomez en Manchester á hann. Vonandi getum við fengið að halda honum í nokkra mánuði í viðbót,“ sagði Gasperini.

„Mér líkar vel við hann. Ég gæti vel hugsað mér að hafa hann þangað til í júní en þetta er undir félagi hans komið.“

Ummæli Gasperini koma á óvart því hinn átján ára gamli Diallo hefur ekki fengið mörg tækifæri eftir að skiptin til United urðu staðfest.

Blaðamaðurinn Fabrizio Romano segir hins vegar að bæði vilji United og leikmannsins sé að hann fari til Englands nú í janúar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×