Hansen sagðist á dögunum vera óviss hvort hann ætti að spila með Dönum á HM sökum þess að mótshaldarar ætli að selja áhorfendum aðgang að leikjum á mótinu, þrátt fyrir kórónuveirufaraldurinn.
Sagosen tók undir gagnrýni Hansens í viðtali við NTB og sagði að velferð leikmanna væri greinilega ekki í fyrsta sæti hjá Alþjóða handknattleikssambandinu, IHF. Forseti þess er Egyptinn Dr. Hassan Moustafa.
„Þetta er fáránlegt, að leyfa áhorfendur eins og staðan í heiminum er núna,“ sagði Sagosen. „IHF hugsar meira um peninga en heilsu leikmanna. Ég held að allir ættu að sjá hversu galið það er að spila fyrir framan áhorfendur í þessu ástandi.“
Á mánudaginn var greint frá því að selt verði í tuttugu prósent sæta í hverri höll sem leikið verður í á HM. Áhorfendur þurfa að virða fjarlægðarmörk og nota andlitsgrímur.
Leikir Íslands í F-riðli fara fram í New Capital Sports höllinni sem tekur 7.500 manns í sæti. Allt að 1.500 manns gætu því verið á fyrstu þremur leikjum Íslands á HM.
Keppni á HM hefst eftir viku. Noregur er í E-riðli ásamt Frakklandi, Austurríki og Bandaríkjunum. Fyrsti leikur Norðmanna er gegn Frökkum fimmtudaginn 14. janúar.
Noregur hefur endað í 2. sæti á síðustu tveimur heimsmeistaramótum. Norðmenn töpuðu fyrir Frökkum í úrslitaleik HM 2017, 33-26, og Dönum í úrslitaleik HM 2019, 22-31.