Innlent

Svona var 152. upplýsingafundurinn vegna kórónuveirunnar

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Rögnvaldur, Þórólfur og Alma á fundinum í dag.
Rögnvaldur, Þórólfur og Alma á fundinum í dag. Júlíus Sigurjónsson

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis boða til hefðbundins upplýsingafundar á mánudagi klukkan 11 í dag.

Alma D. Möller landlæknir og Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir fara yfir stöðu mála varðandi framgang COVID-19 faraldursins hér á landi ásamt Rögnvaldi Ólafssyni aðstoðaryfirlögregluþjóni. Gestur fundarins verður Gylfi Þór Þorsteinsson, umsjónarmaður sóttvarnahúss.

Sem fyrr eru fjölmiðlar hvattir til að spyrja spurninga og sýna beint frá fundinum en fyrirkomulagið verður með sama hætti og síðustu vikur.

Fundurinn verður í beinni útsendingu á Vísi og sömuleiðis í sjónvarpinu á Stöð 2 Vísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira
×