„Ég reikna fastlega með því að ég verði fljótlega formaður landsstjórnarinnar,“ segir Erik Jensen í viðtali við KNR.
Þrír flokkar standa að landsstjórninni, sem varð meirihlutastjórn síðastliðið vor þegar Demokraterne, sem áður höfðu varið minnihlutastjórn Kims Kielsens falli, gengu formlega til liðs við hina stjórnarflokkana, Siumut og Nunatta Qitornai.

Miðað við fyrstu viðbrögð formanns Demokraterne, Jens-Frederiks Nielsens, er óvíst að Erik Jensen takist að koma Kim Kielsen frá völdum.
„Ég verð að segja að þetta er furðuleg yfirlýsing í ljósi þess að það hafa engar viðræður átt sér stað milli samstarfsflokkanna um þetta,“ segir Jens-Frederik Nielsen og bætir við:

„Ég á erfitt með að sjá hvernig Erik Jensen geti með því að senda út yfirlýsingu gengið út frá því að geta bara haldið áfram með stjórnarsáttmálann og sjálfan sig sem formann landsstjórnarinnar.
Svo mér finnst það svolítið skrýtið að hann hafi sent út svona yfirlýsingu. En ég hlakka auðvitað til viðræðnanna,“ segir formaður Demokraterne í viðtali við KNR.
Að sögn Jens-Frederik Nielsen fara viðræðurnar fram um miðja vikuna. Hann tekur fram að ef breyta eigi stjórnarsáttmálanum verði það ekki án krafna frá samstarfsflokkunum.
„Að þessu sögðu á ég erfitt með að sjá hversu raunhæft er að breyta yfirleitt samkomulagi flokkanna, nú þegar styttist í að kjörtímabilinu ljúki.“
Formaður Nunatta Qitornai, þriðja stjórnarflokksins, Vittus Qujaukitsoq fjármálaráðherra, hefur ekki svarað fyrirspurnum fjölmiðla um málið.
Kim Kielsen, sem er 54 ára gamall fyrrverandi lögreglumaður, hefur verið leiðtogi Grænlands í rúm sex ár eða frá haustinu 2014 þegar hann tók við forsætisráðherraembættinu af Alequ Hammond.
Erik Jensen sat sem ráðherra í ríkisstjórn Kims Kielsens um tveggja ára skeið, frá 2017 til 2019, en var fyrst kjörinn á þing Grænlands í apríl 2018. Hann var áður sveitarstjórnarmaður í Qeqqata Kommunia. Þá sat hann í stjórn Handknattleikssambands Grænlands, þjálfaði bæði handbolta- og fótboltalið og var árið 2009 kjörinn þjálfari ársins á Grænlandi.
Þess má geta að annar varaformanna Siumut er Íslendingur, Inga Dóra Guðmundsdóttir Markussen. Hún var áður framkvæmdastjóri Vestnorræna ráðsins og er að hluta alin upp á Íslandi, dóttir Guðmundar Þorsteinssonar, Gujo, og Benedikte Thorsteinsson, fyrrverandi ráðherra Grænlands.