Í samtali við kvöldfréttir Stöðvar 2 í kvöld sagði Jón Atli, sem tekinn var tali í húsakynnum skólans í beinni útsendingu, að málið væri mikið áfall.
„Hér erum við á Háskólatorgi, hjarta háskólasvæðisins. Hér eru kennslustofur sem hafa orðið fyrir miklu tjóni og við þurfum að fara í að gera þær upp. Hér eru teppi sem eru ónýt, veggir sem þarf að taka í gegn og það eru hurðar sem eru laskaðar mjög. Þetta er mikið áfall,“ segir Jón Atli.
Myndband úr öryggismyndavél fyrir utan háskólann sýnir hvernig vatn hóf að flæða í litlu magni og krafturinn jókst svo til muna, þannig að fljótt flæddi inn í hús háskólans. Myndbandið má sjá hér að ofan.
Leita þurfi lausna
Gimli, eitt af húsum háskólans, er rafmagnslaust sem stendur. Jón Atli segir að finna þurfi lausn á því og koma rafmagninu á sem allra fyrst. Þá hafi lekinn orðið þess valdandi að breyta hafi þurft áherslum varðandi staðkennslu, sem hefur verið takmörkuð upp á síðkastið.
„Við erum í vandræðum. Þetta eru stofurnar hér á Háskólatorgi sem hafa verið notaðar í staðkennslu,“ segir Jón Atli. Hann segir ljóst að nú þurfi að finna aðrar lausnir í staðkennslu, en um þessar mundir fer meirihluti kennslu í háskólanum fram á netinu sökum kórónuveirufaraldursins.

„Það var brugðist hratt við og ég vil þakka starfsfólki Háskóla Íslands, og öllum þeim sem komu að þessu, slökkviliðinu til að mynda fyrir hvað þetta var samhent aðgerð. Mér finnst við hafa gert eins vel og við gátum, miðað við aðstæður sem við bjuggumst alls ekki við að lenda í,“ segir Jón Atli.
Aðspurður hvort hann telji að háskólinn fái tjónið bætt, þar sem ríkið tryggir ekki stofnanir sínar, segist Jón Atli bjartsýnn. Hann segir þá ekki liggja fyrir hvort tjónið muni hafa áhrif á rekstur háskólans.
„Við erum bjartsýn hvað þetta varðar. Veitur höfðu strax samband og hafa komið hingað og skoðað aðstæður. Við erum að vinna með þeim. Þetta er augljóslega tjón sem varð frá utanaðkomandi aðilum og við viljum vona að það verði bætt. Ef það verður ekki, þá verðum við bara að taka á því þegar þar að kemur en ég er tiltölulega bjartsýnn miðað við hvernig málin hafa þróast og upprunann, að þetta verði bætt,“ segir Jón Atli. Þá hafi verið haft samband við mennta- og menningarmálaráðuneytið vegna málsins. Svörin þaðan hafi verið jákvæð.