Lífið

Freyr og Kolfinna komin í samband

Eiður Þór Árnason skrifar
Tilkynningin hefur vakið mikla lukku á samfélagsmiðlinum Facebook.
Tilkynningin hefur vakið mikla lukku á samfélagsmiðlinum Facebook. Aðsend

Freyr Gylfason, fyrrverandi sjónvarpsstjóri Stöðvar 2 og Kolfinna Baldvinsdóttir, ritstjóri hjá HB útgáfu, eru komin í samband. Nýja parið tilkynnti þetta með opinberum hætti á Facebook í gær.

Freyr er fyrrverandi eiginmaður Ellý Ármanns, fjölmiðla- og listakonu, og eiga þau dóttur saman.

Sagnfræðingurinn Kolfinna á sömuleiðis að baki starfsferil í fjölmiðlum en hefur meðal annars unnið þætti fyrir Stöð 2, ÍNN og RÚV. Hún á tvö börn og var áður gift tónlistarmanninum Birni Jörundi.

Posted by Freyr Gylfason on Friday, February 5, 2021





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.