Innlent

Fáum fleiri bólu­efna­skammta en gert var ráð fyrir

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Evrópusambandið hefur gert viðbótarsamning við Pfizer.
Evrópusambandið hefur gert viðbótarsamning við Pfizer. Vísir/vilhelm

Evrópusambandið og bóluefnisframleiðandinn Pfizer hafa gert með sér viðbótarsamning um kaup á hið minnsta 200 milljón skömmtum af bóluefni, að því er fram kemur í norskum fjölmiðlum í dag. Þá er von á fleiri skömmtum til ríkja Evrópusambandsins frá AstraZeneca en búist var við. Ísland fær þar með fleiri bóluefnisskammta en áður var gert ráð fyrir.

Bent Høie heilbrigðisráðherra Noregs sagði frá því á blaðamannafundi í dag að Evrópusambandið og Pfizer hefðu samið um kaup á 200 milljónum skömmtum af bóluefninu til viðbótar við skammtana sem þegar hefur verið samið um. Þá hefði verið samið um möguleika á kaupum á 100 milljón skömmtum ofan á það.

Bent Høie, heilbrigðisráðherra Noregs.EPA/Håkon Mosvold Larsen

Noregur fái 2,24 milljónir skammta af þessum aukaskömmtum auk kaupréttar á 1,2 milljónum skammta. Høie gerði jafnframt ráð fyrir að af þessum viðbótarskömmtum kæmu 840 þúsund til Noregs strax í apríl, maí og júní.

Auk þess hefði AstraZeneca tilkynnt að fyrirtækið gæti aukið framleiðslugetu sína um 50 prósent á sama tímabili. Þannig mætti samtals búast við 2,4 milljónum aukaskömmtum af bóluefni til Noregs miðað við það sem áður var gert ráð fyrir.

Richard Bengström yfirmaður bólusetningarmála í Svíþjóð sagði í samtali við SVT í dag að Svíþjóð fái mun fleiri skammta frá AstraZeneca en áður var búist við; um 20 prósent fleiri skammta í mars og á öðrum ársfjórðungi verði skammtarnir 50 prósent fleiri en búist var við. Hann kvaðst vongóður um að búið yrði að bólusetja alla fullorðna Svía í sumar.

Vita ekki hvað aukaskammtarnir verða margir

Samkvæmt upplýsingum fá heilbrigðisráðuneytinu koma fleiri skammtar af bóluefni til Íslands vegna þessa samnings ESB en áður var gert ráð fyrir. Ekki hafi þó fengist staðfest hversu mikil aukningin verður.

Ríkisútvarpið bendir á að Íslendingar fái 6,8 prósent af þeim fjölda skammta sem Norðmenn fá. Samkvæmt því ættu Íslendingar þannig að fá auka 57 þúsund skammta í apríl, maí og júní, sem duga fyrir rúmlega 28 þúsund manns. Alls yrðu aukaskammtarnir 340 þúsund talsins.

Fram kemur í yfirliti yfir afhendingaráætlun bóluefna frá heilbrigðisráðuneytinu í gær að samningar Íslands við Pfizer, Moderna og AstraZeneca tryggi bóluefni fyrir 304 þúsund manns. Ekki lágu fyrir staðfestar afhendingaráætlanir til lengri tíma en út mars frá framleiðendunum þremur. Að því sögðu væri þó raunhæft að reikna með að afhending bóluefna aukist til muna strax á öðrum ársfjórðungi, þ.e. á tímabilinu apríl til júní.


Tengdar fréttir

Fjórir greindust innanlands í gær

Fjórir greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Ekki hafa svo margir greinst með veiruna innanlands á einum sólarhring síðan þann 26. janúar.

Margir hringdu sig inn veika eftir seinni sprautuna

Lögreglu-, slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn á höfuðborgarsvæðinu bera sig margir hverjir illa í dag. Margir hafa tilkynnt sig veika í dag og aðrir eru lumbrulegir á vaktinni. Ástæðan er viðbrögð við seinni bólusetningusprautunni sem fyrrnefndir hópar fengu í Laugardalshöll í gær.

Mæta í næstu sprautu eftir þrjá mánuði

Tólf hundruð manns voru bólusettir með bóluefni AstraZeneca gegn kórónuveirunni í húsakynnum Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins á Suðurlandsbraut í dag. Bólusetning gekk afar vel, að sögn framkvæmdastjóra hjúkrunar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×