Lífið

Búið að selja húsið sem kallaði á hlífðar­fatnað og alls­herjar endur­nýjun

Eiður Þór Árnason skrifar
Í raun hefur ekkert verið gert fyrir húsið síðan 1964.
Í raun hefur ekkert verið gert fyrir húsið síðan 1964.

Víðfrægt hús í Kópavogi sem vakti mikla athygli fyrr í mánuðinum hefur verið selt. Fasteignasali benti áhugasömum kaupendum á að skoða húsið í hlífðarfatnaði af heilsufarsástæðum.

Þetta kemur fram á fasteignavef Vísis en Fréttablaðið greindi fyrst frá sölunni. Eignin sem er staðsett í Skólagerði 47 er í vægast sagt slæmu ásigkomulagi af ljósmyndum að dæma en fram kemur í fasteignaauglýsingu að töluvert sé um myglu og rakaskemmdir í húsinu.

Fasteignasali vildi ekkert gefa upp um söluverð eða kaupanda eignarinnar í samtali við Fréttablaðið en uppgefið verð hússins eru 38,5 milljónir króna og fasteignamat þess 51,3 milljónir.

Húsið er 204 fermetrar og eru þar fimm svefnherbergi og þrjú baðherbergi. Einnig eru tvennar svalir í húsinu. Að sögn fasteignasala er nauðsynlegt að endurnýja eignina að fullu að utan og í raun að innan líka.

Áður hefur verið greint frá því að húsið hafi tilheyrt dánarbúi Carls Johans Eiríkssonar sem var ein besta riffilskytta landsins á sínum tíma en hann lést síðastliðið sumar 91 árs að aldri. Hann tók til að mynda þátt á Ólympíuleikunum í Barcelona árið 1992 í riffilskotfimi, nánar tiltekið í greininni 60 skot liggjandi. Fram kemur í fasteignaauglýsingu að í ljósi aðstæðna geti seljandi ekki uppfyllt upplýsingaskyldu sína gagnvart kaupanda að fullu.

Kaupandi hússins þarf að fara í mikla endurnýjun á eigninni.
Í raun þarf að taka allt í gegn í eigninni.
Fram hefur komið að nágrannar hafi kvartað ítrekað undan viðhaldsskorti á húsinu og haft áhyggjur af því að ástand þess myndi minnka virði eignar sinnar. 





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.