Erlent

Látin eftir að hafa verið skotin í höfuðið í mótmælum

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Ekkert lát virðist vera á mótmælunum í Mjanmar sem staðið hafa yfir síðan herinn tók völdin í landinu fyrr í mánuðinum.
Ekkert lát virðist vera á mótmælunum í Mjanmar sem staðið hafa yfir síðan herinn tók völdin í landinu fyrr í mánuðinum. AP

Tvítug kona sem særðist alvarlega þegar hún var skotin af lögreglu í Mjanmar á dögunum er látin af völdum áverkans.

Mya Thwe Thwe Khaing var að mótmæla valdaráni hersins í landinu þegar hún fékk skot í höfuðið.

Hún er fyrsti mótmælandinn til að láta lífið í átökunum en almenningur í landinu hefur síðustu daga hópast út á götur landsins og mótmælt framferði hersins sem hneppti leiðtoga landsins í varðhald eftir að umbótamenn höfðu unnið stórsigur í kosningum í landinu í nóvember.

Lögregla hefur beitt öflugum vatnsbyssum og táragasi og gúmmíkúlum gegn fólkinu en einnig venjulegum byssukúlum í stöku tilfellum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×