Nú situr hann í fangelsi í Rúanda og er verið að rétta yfir honum fyrir hryðjuverkastarfsemi.
Árið 1994 stýrði Paul Rusesabagina, sem nú er 66 ára gamall, hótelinu Hôtel des Mille Collines í Kigali í Rúanda. Það ár fór þjóðarmorðið fram þar sem öfgamenn sem tilheyra Hútum eru sagðir hafa myrt um átta hundruð þúsund Tútsa og andstæðinga sína, þar á meðal aðra Húta, á um hundrað dögum.
Áhugasamir geta lesið meira um þjóðarmorðið á Vísindavefnum.
Rusesabagina notaði hótelið til að vernda 1.268 manns, bæði Húta og Tútsa, frá ofbeldinu. Hann gaf öfgamönnum áfengi og peninga frá hótelinu til að halda þeim fjarri. Eftir þjóðarmorðið var Rusesabagina hylltur sem hetja víða um heim en kvikmyndin Hotel Rwanda ýtti enn frekar undir frægð hans.
Notaði stöðu sína til að gagnrýna forsetann
Samhliða aukinni frægð sinni, fór Rusesabagina að gagnrýna stefnumál Paul Kagame, sem stýrt hefur Rúanda frá 1994. Rusesabagina hefur sakað Kagame um einræðistilburði.
Kagame hefur haldið Rúanda tiltölulega stöðugu í gegnum árin en hefur lengi verið sakaður um að þagga niður í andstæðingum sínum með mikilli hörku, samkvæmt frétt New York Times.

Rusesabagina fluttist til Belgíu eftir þjóðarmorðið, eða árið 1996. Hann fór þó að óttast um öryggi sitt og fjölskyldu sinnar þar, eftir að brotist hafði verið inn til hans nokkrum sinnum, og flutti hann til Texas. Þar hefur hann búið með fjölskyldu sinni undanfarin ári.
Hann birtist hinsvegar óvænt í handjárnum í Rúanda síðasta sumar.
Hélt hann væri á leið til Búrúndí
Rusesabagina sagðist fyrst hafa verið handsamaður í Dubaí en í viðtali sem tekið var í fangelsi í Kigali í september sagðist hann hafa verið plataður til að fljúga frá Dúbaí til Rúanda. Hann hélt að hann væri á leið til Búrúndí þar sem hann átti að halda ræðu.
Það var 28. ágúst.
Fjölskylda Rusesabagina hefur höfðað mál gegn GainJet, gríska flugfélaginu sem gerði út flugvélina sem Rusesabagina var fluttur með.
Rusesabagina var fyrst færður fyrir dómara í síðustu vikum auk tuttugu annarra og eru þeir sakaðir um að hafa valdið árásum í Rúanda árin 2018 og 2019 með þeim afleiðingum að minnst níu dóu.
Rusesabagina er sérstaklega ákærður fyrir að fjármagna hryðjuverkastarfsemi og önnur brot sem tengjast hryðjuverkastarfsemi, þar á meðal morð, mannrán og stofnun hryðjuverkasamtaka.

Sagði pólitískar leiðir hafa verið reyndar
Ásakanirnar gegn Rusesabagina byggja að miklu leyti á myndbandi frá 2018 þar sem hann sagði allar pólitískar leiðir hafa verið reyndar í Rúanda og að nú væri kominn tími til að beita öllum mögulegum leiðum til að ná fram breytingum í landinu.
Hann er sakaður um að vera leiðtogi MRCD og annarra samtaka sem sökuð eru um að hafa gert árásir á Rúanda, erlendis frá. Hann stofnaði MRCD en hernaðararmur samtakanna, FLN, hefur gert árásir í landinu.
Fyrir dómi sagðist Rusesabagina vilja vera ávarpaður sem belgískur ríkisborgari og staðhæfði að sér hefði verið rænt af yfirvöldum Rúanda. Þeir hefðu ekki rétt á að rétta yfir honum, samkvæmt frétt CNN.

Í síðustu viku opinberuðu 37 bandarískir þingmenn að þeir höfðu sent Kagame bréf í desember og kallað eftir því að Rusesabagina yrði sleppt úr haldi. Evrópuþingið hefur sömuleiðis gagnrýnt yfirvöld í Rúanda vegna handtökunnar.
Réttarhöldin halda áfram á föstudaginn
Dómurinn mun opinbera niðurstöðu sína varðandi þá röksemdarfærslu Rusesabagina að ekki sé hægt að rétta yfir honum í Rúanda vegna belgísks ríkisborgararéttar hans þegar réttarhöldin halda áfram á föstudaginn. Kröfu hans um að vera sleppt úr fangelsi vegna heilsukvilla hefur þó verið hafnað.