Lífið

„Þær hneyksluðust ógurlega eins og þetta væri einhver dauðasynd“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Líf Magneudóttir segist oft ulla á börnin sín án þess að það sé eitthvert stórmál.
Líf Magneudóttir segist oft ulla á börnin sín án þess að það sé eitthvert stórmál. Vísir/Vilhelm

Líf Magneudóttir borgarfulltrúi hefur brennandi áhuga á fólki og hefur það leitt hana niður alls konar brautir í lífinu. Hún er kennaramenntuð og hvatvís, andkapítalisti og með einstaka ástríðu fyrir mennta- og umhverfismálum landsins.

Líf þreytist seint á að klofa þangfjöru stjórnmálanna, sem hún skilur þó eftir við þröskuldinn þegar hún kemur heim að hjálpa barninu við túbuæfingar dagsins – þótt hún sé laglaus sjálf.

Líf telur mikilvægt að allir taki þátt í pólitík, enda sé hún fyrir alla, og vinni að þeim breytingum sem það vill sjálft sjá í samfélaginu. Líf er gestur Snæbjörns Ragnarssonar í þættinum Snæbjörn talar við fólk.

Klippa: Snæbjörn talar við fólk - Líf Magneudóttir

Í þættinum rifjar Líf upp mál sem komst í fjölmiðla árið 2018 þegar hún ullaði á borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins í Ráðhúsi Reykjavíkur og var það bókað inn í fundargerð borgarráðs.

„Þetta var á lokuðum fundi og þetta voru bara einhver viðbrögð yfir einhverju sem ég var alveg brjáluð yfir. Svo starði Marta [Guðjónsdóttir] svona á mig illskulega á mig og þetta varð allt mjög kjánalegt. Þær hneyksluðust ógurlega eins og þetta væri einhver dauðasynd að ulla á einhvern. Ég ulla stundum á börnin mín og þau á móti. Þetta var svo sem merkingarlaust í mínum huga og ég sá ekkert eftir þessu,“ segir Líf og heldur áfram og fannst henni í raun galið að þetta hafi verið bókað inn í fundargerðina eins og Marta gerði.

Marta hafði þetta um málið að segja í kvöldfréttum Stöðvar 2.

„Það hefur viðgengist allt of lengi að það sé sýndur dónaskapur og óháttvísi. Andrúmsloftið er orðið ansi eitrað og í stað þess að við séum að einbeita okkur að þeim málum sem við höfum verið kjörin til að þá fer tíminn í svona óþarfa mál og því verður að linna. Þess vegna lagði ég fram þessa bókun til þess að varpa ljósi á þessi mál svo fólk fari aðeins að velta fyrir sér til hvers þau voru kjörin og fari að vinna að þeim verkefnum sem við eigum að vera vinna að,“ sagði Marta.

Hér að ofan má hlusta á brot úr þættinum og hér að neðan má hlusta á þáttinn í heild sinni.


Tengdar fréttir

Segir Líf einnig hafa „ullað“ á Eyþór

Svo virðist sem mikill samskiptavandi sé milli kjörinna fulltrúa í borgarstjórn Reykjavíkur og er hann farinn að hafa áhrif á úrlausn mikilvægra mála






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.