Lífið

„Það er greinilegt að ég gæti fengið góð ráð“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Bjarni á langt í land í að ná sama fylgjendafjölda og tengdadóttirin. 
Bjarni á langt í land í að ná sama fylgjendafjölda og tengdadóttirin.  Vísir/vilhelm/@sunnevaeinarss

Garðbæingurinn Bjarni Benediktsson hefur verið á þingi síðan 2003 og er í dag fjármála- og efnahagsráðherra Íslands. Bjarni er gestur vikunnar í Einkalífinu.

Bjarni Ben er farsæll stjórnmálamaður og hefur verið það í mörg ár. Hann er aftur á móti umdeildur eins og sést oft á tíðum á umræðunni á samfélagsmiðlum og einnig hjá andstæðingum hans í stjórnmálum.

Bjarni er giftur Þóru Margréti Baldvinsdóttur og eiga þau saman fjögur börn sem fædd eru á árunum 1991 til 2011.

Bjarni er nokkuð virkur á samfélagsmiðlum og er hann með tæplega fimm þúsund fylgjendur á þeim vettvangi.

Tengdadóttir hans, samfélagsmiðlastjarnan Sunneva Einarsdóttir, er aftur á móti með tífalt fleiri fylgjendur en fjármálaráðherra. Sunneva er í sambandi með Benedikt Bjarnasyni.

„Það er greinilegt að ég gæti fengið góð ráð þar,“ segir Bjarni léttur.

„Við höfum ekki rætt þetta. Hún og Benedikt hafa verið kærustupar í um það bil tvö ár ef ég hef tekið rétt eftir og ég hef ekki verið að leita til hennar með þetta en þetta er kannski það sem hefur breyst hvað mest á meðan ég hef verið í stjórnmálum. Það er hvernig fólk á samskipti og hvernig fjölmiðlar hafa þróast. Auðvitað frægasta dæmi er hvernig Trump átti samskipti við sína fylgjendur.“

Umræðan um samfélagsmiðla hefst þegar rúmlega 29 mínútur eru liðnar af þættinum hér að ofan.

Sunneva Einarsdóttir hefur áður verið gestur í Einkalífinu og fór hún þar meðal annars yfir það hvernig hún varð svona ótrúlega vinsæl á samfélagsmiðlum. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.