Erlent

Yfirgáfu Norður-Kóreu á handknúnum járnbrautavagni

Samúel Karl Ólason skrifar
Erindrekarnir og fjölskyldur þeirra á ferð og flugi frá Norður-Kóreu.
Erindrekarnir og fjölskyldur þeirra á ferð og flugi frá Norður-Kóreu. Utanríkisráðuneyti Rússlands

Rússneskir erindrekar og fjölskyldur þeirra þurftu að nota handknúinn járnbrautarvagn til að ferðast frá Norður-Kóreu, þar sem landamærin eru alfarið lokuð vegna faraldurs nýju kórónuveirunnar.

Utanríkisráðuneyti Rússlands deildi myndum um myndbandi af fólkinu í gær.

Samkvæmt frétt Moscow Times hófst ferðalag hópsins með 32 klukkustunda lestaferð frá Pyoungyan. Svo tók við tveggja tíma rútuferð að landamærum Norður Kóreu og Rússlands.

Því næst þurfti hópurinn að fara á brautarvagninum yfir landamærin.

Yfirvöld í Norður-Kóreu gripu til strangra aðgerða í fyrra vegna faraldursins, þrátt fyrir að ráðamenn hafi haldið því fram að enginn hafi veikst þar eða smitast. Meðal þeirra aðgerða var að landamærum Norður-Kóreu var lokað.

Sjá einnig: Kim sagður reiður og óskynsamur

Sérfræðingar hafa dregið verulega í efa að enginn hafi smitast af nýju kórónuveirunni í Norður-Kóreu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×