Innlent

Ár frá því kórónuveiran nam land á Íslandi

Birgir Olgeirsson skrifar
Hér má sjá þau Víði Reynisson yfirlögregluþjón, Ölmu Möller landlækni, Þórólf Guðnason sóttvarnalækni og Guðlaugu Rakel Guðjóns­dótt­ir, fram­kvæmda­stjóra flæðisviðs Land­spít­ala á fyrsta blaðamannafundinum sem boðaður var vegna kórónuveirunnar. 
Hér má sjá þau Víði Reynisson yfirlögregluþjón, Ölmu Möller landlækni, Þórólf Guðnason sóttvarnalækni og Guðlaugu Rakel Guðjóns­dótt­ir, fram­kvæmda­stjóra flæðisviðs Land­spít­ala á fyrsta blaðamannafundinum sem boðaður var vegna kórónuveirunnar.  Vísir/Vilhelm

Það var rétt fyrir klukkan þrjú á þessum degi fyrir ári síðan sem fréttin var sögð af fyrsta greinda tilfelli kórónuveirunnar hér á landi.

Um var að ræða karlmann á fimmtugsaldri sem var nýkominn heim frá Norður Ítalíu þar sem hann hafði verið í skíðaferð ásamt fjölskyldu og vinum.

Boðað var til blaðamannafundar í kjölfarið þar sem meðal annars Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn, Alma Möller landlæknir og Þórólfur Guðnason sóttvaranlæknir sátu fyrir svörum.

Sjá má þennan blaðamannafund hér fyrir neðan: 

Brýnt var fyrir þjóðinni að halda ró sinni, meirihluti þeirra sem smituðust fengju væg einkenni og farið var yfir hvernig veiran smitaðist á milli fólks. Greint var frá því að heil þrjú lögregluembætti höfðu verið virkjuð til að rekja ferðir mannsins en líkt og margir þekkja nú var smitrakningateymi myndað skömmu síðar.

Forseti Íslands steig fram og brýndi fyrir landsmönnum að vera forsjálir, skynsamir og yfirvegaðir. Skelfing myndi enga vanda leysa.

Ekki skorti grínið frá fólki á samfélagsmiðlum sem sumt hvað reyndist seinna meira reyndist ekki of fjarri þeim veruleika sem Íslendingar þurftu  að kljást við í kjölfarið.

Síðan þá hafa rúm 6.000 manns smitast af kórónuveirunni hér á landi í þremur bylgjum. Tæp fimmtíu þúsund hafa farið í sóttkví, rúm 277 þúsund sýni hafa verið tekin, 327 hafa lagst inn á sjúkrahús og 53 á gjörgæslu. 29 hafa látist.

Fyrir ári virtist bóluefni við veirunni óljós draumur en í dag hafa rúmlega 12.500 verið fullbólusettir við veirunni og búast stjórnvöld við að þorri þjóðar verði bólusettur fyrir mitt ár.

Hér fyrir neðan má sjá sjónvarpsfrétt Stöðvar 2 af þessu fyrsta greinda tilfelli




Fleiri fréttir

Sjá meira


×