Bæjarfélögin segja heilbrigðisráðuneytið þvinga fram uppsagnir alls starfsfólks hjúkrunarheimilanna án þess að tryggt væri að það héldi störfunum eftir að heilbrigðisstofnanir ríkisins taka reksturinn yfir. Uppsagnir áttu að taka gildi um næstu mánaðamót en sveitarfélögin hafa frestað þeim um mánuð í von um að lausn finnist.

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur sagt margar rangfærslur í málflutningi Vestmannaeyjabæjar og Fjarðabyggðar. Verið sé að framfylgja lögum við yfirtökuna og bæjarfélögin hljóti að hafa gert sér grein fyrir að yfirtakan hefði uppsagnir starfsfólks í för með sér og síðan yrðu störfin auglýst laus til umsóknar. Heimir Már Pétursson fréttamaður fær heilbrigðisráðherra til að ræða þessi mál í Víglínunni á Stöð 2 í dag.
Uppstillingarnefnd Samfylkingarinnar í suðvesturkjördæmi, Kraganum, ákvað í vikunni að skáka Guðmundi Andra Thorssyni alþingismanni og oddvita flokksins í kjördæminu úr forystusætinu í annað sætið. Þórunn Sveinbjarnardóttir formaður BHM og fyrrverandi þingmaður flokksins og umhverfisráðherra var skipuð í fyrsta sætið og kæmi því aftur inn á þing eftir tíu ára hlé nái hún kjöri.

Þórunn mætir í Víglínuna ásamt Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur formanni Viðreisnar samráðherra hennar í ríkisstjórn Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks undir forsæti Geirs H. Haarde. Í kosningunum í lok september munu þær takast á um hilli kjósenda vinstri og hægra megin við miðju stjórnmálanna en áherslur þessarra flokka eru um margt líkar.

Mikil óánægjualda braust út meðal samtaka kvenna í þjóðfélaginu þegar upplýst var að dómsmálaráðherra hefði ákveðið að ráða Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttarlögmann og fyrrverandi hæstaréttardómara í tímabundið verkefni til að vinna að tillögum um styttingu málsmeðferðartíma í refsivörslukerfinu.
Um svipað leyti kynntu Stígamót kæru níu kvenna á íslenska ríkinu til Mannréttindadómstóls Evrópu vegna þess að kynferðis- og heimilisofbeldismál þeirra hefðu verið felld niður.

Steinunn Gyðu og Guðjónsdóttir talskona Stígamóta og Jón Steinar Gunnlaugsson sem ákvað á föstudag að segja sig frá verkefninu mæta í Víglínuna til að ræða þessi mál. Jón Steinar hefur áður verið gagnrýndur fyrir málflutning sinn um sönnunarbyrði í kynferðisbrotamálum þar sem hann hefur meðal annars sagt að ekki sé hægt að snúa sönnunarbyrði í þeim málum við. Stígamót hafa síðan haldið því fram að ekki sé hlustað á sjónarmið kvenna í kynferðir- og heimilisofbeldismálum.
Víglínan er á dagskrá Stöðvar 2 klukkan 17:35 og fer inn á Stöð 2+ að útsendingu lokinni.