Sport

Tímabilið búið hjá Söru áður en það byrjaði: Versta martröðin hennar

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sara Sigmundsdóttir er ein besta CrossFit kona heimsins og því stórfrétt í CrossFit heiminum að hún sé úr leik á þessu tímabili.
Sara Sigmundsdóttir er ein besta CrossFit kona heimsins og því stórfrétt í CrossFit heiminum að hún sé úr leik á þessu tímabili. Instagram/@crossfitgames

Íslenska CrossFit konan Sara Sigmundsdóttir sleit krossband á dögunum og missir því af öllu 2021 tímabilinu.

Sara sagði frá þessum hræðilegu fréttum á Instagram síðu sinni í gær en hún meiddist á æfingu í síðustu viku. Sara hefði annars átt að klára fyrstu æfinguna á The Open um helgina en opni hlutinn markar upphafið að nýju tímabili í CrossFit og fyrsta skrefið í átt að heimsleikunum í haust.

Þetta er enn eitt áfallið á ferli Söru en það er óhætt að segja að hún hafi ekki haft heppnina með sér undanfarin ár þar sem meiðsladraugurinn hefur elt hana uppi hvað eftir annað. Fyrir vikið þar Sara að bíða að minnsta kosti eitt ár í viðbót eftir að upplifa heimsmeistaradrauminn sinn.

Nú er líka ljóst að sigurgöngu Söru á The Open lýkur núna en hún hafði unnið upphafshluta CrossFit tímabilsins tvö ár í röð og þrisvar á síðustu fjórum árum.

„Ég upplifði mína verstu martröð fyrr í þessari viku þegar ég meiddist á hné á æfingu. Ég fann smell í hnénu þegar ég var að gera ‚split jerk' æfingu og fór strax í myndatöku. Niðurstaðan var að ég hafði slitið fremra krossbandið,“ skrifaði Sara Sigmundsdóttir á Instagram síðu sína.

„Ég er enn að reyna að átta mig á því að þetta hafi yfir höfuð gerst og þeirri staðreynd að ég muni ekki taka þátt á 2021 keppnistímabilinu í CrossFit. Nú þarf ég að fara í skurðaðgerð og svo taka við mánuðir í endurhæfingu. Þegar tímalínan kemst betur á hreint þá mun ég segja frá hvernig framhaldið lítur út hjá mér,“ skrifaði Sara.

„Ég er svo þakklát fyrir þann stuðning sem ég hef fengið frá mínu teymi og mínum styrktaraðilum. Svo auðvitað líka fyrir stuðninginn frá ykkur öllum sem hafið staðið með mér í gegnum súrt og sætt og hafið alltaf verið mín mesta hvatning síðan ég byrjaði í þessari íþrótt,“ skrifaði Sara.

„Vitandi það að það sé hægt að koma hundrað prósent til baka eftir svona meiðsli gefur mér fulla ástæðu til að vera jákvæð og hungrið í öfluga endurkomu er þegar til staðar. Þetta er mín áskorun núna og ég tek henni,“ skrifaði Sara.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×