Lífið

Stjörnulífið: Skvísuskíðaferð og glæný penthouse íbúð

Stefán Árni Pálsson skrifar
Heldur betur viðburðarrík helgi. 
Heldur betur viðburðarrík helgi. 

Útivist og skemmtun setur svip sinn á Stjörnulífið þessa vikuna. Gott veður þennan vetur hefur haft það í för með sér að Íslendingar njóta þess að vera úti í íslenskri vetrarnáttúru.

En fyrst skoðum við glænýja penthouse sem Ásdís Rán er flutt inn í í Búlgaríu. 

Helstu samfélagsmiðlastjörnur landsins skelltu sér saman í skíðaferð í Skagafjörðin og virtust skemmta sér mjög vel. Um var að ræða þær Birgittu Líf, Sunnevu Einars, Ástrós Traustadóttur, Kristínu Pétursdóttur og Hildi Sif Hauksdóttur.

 Fanney Ingvarsdóttir og Teitur Reynisson skelltu sér í Bláfjöll með frumburðinn. 

 Binni Glee mætti í borgina um helgina og leit einstaklega vel út. 

 Elísabet Gunnarsdóttir fagnaði 30 ára afmæli sínu hér á landi.

Daði Freyr fagnaði útgáfu Eurovision-lagsins 10 Years.

 Opinber Eurovision Instagram-síðan fagnaði einnig laginu. 

Fjölmiðlakonan Viktoría Hermannsdóttir er komin með almennilegan stað til að geyma kaffibollann en hún er ólétt af sínu öðru barni með Sólmundi Hólm. Fyrir átti hún eina stúlku og hann tvo drengi. 

 Þórunn Antonía skellti sér í kjól. 

Rúrik Gíslason virðist vera óstöðvandi í þýska skemmtiþættinum Let´s Dance en hann komst áfram með dansfélaga sínum á föstudagskvöldið og hann er þakklátur. 

Landsliðsmaðurinn Hólmar Örn Eyjólfsson skellti sér í göngutúr með syni sínum í Þrándheimi. 

Samfélagsmiðlastjarnan Gæi stillti sér upp fyrir framan hvalinn fræga, eins og margir hafa verið að gera undanfarna daga en varað hefur verið við. Hvalurinn strandaði við Garð­skaga á Reykja­nes­skaganum.

Fyrirsætan Andrea Röfn birtir skemmtilega myndasyrpu frá lífi hennar með dóttir sinni og Arnóri Ingva Traustasyni í Malmö en þar leikur Arnór sem atvinnumaður í knattspyrnu.

Aðeins vika eftir á meðgöngunni hjá Sigríði Jónu Rafnsdóttur og Jóni Viðari Arnþórssyni.

Bubbi Morthens er kominn með nýjan umboðsmann, Ísólf Haraldsson, og birti hann mynd af þeim saman frá árinum 2002. 

 Leikkonan Þuríður Blær skellti sér á frumsýningu á The Last Kvöldmáltíð um helgina. 

 María Birta hefur aldrei verið hamingjusamari. 

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.