Veður

Gul viðvörun og allt að fimmtán stiga hiti

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Hæstu hitatölur dagsins verða á Austurlandi ef spár Veðurstofunnar ganga eftir.
Hæstu hitatölur dagsins verða á Austurlandi ef spár Veðurstofunnar ganga eftir. Vísir/Vilhelm

Víðáttumikil hæð sem er skammt vestur af Írlandi beinir hlýjum og rökum vindum til okkar en á Norður- og Austurlandi verður úrkomulítið auk þess sem þar munu jafnframt mælast hæstu hitatölurnar.

Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands en í staðaspánni segir að í dag sé spáð fimm til fimmtán stiga hita þar sem hlýjast verður austanlands.

Spáin er svo aðeins önnur fyrir Snæfellsnesið þar sem Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir Breiðafjörð sem gildir fram á nótt. Á viðvörunarvef stofnunarinnar segir:

„Sunnan stormur 20 - 25 m/s á Snæfellsnesi. Búast má við mjög snörpum vindhviðum, staðbundið yfir 30 m/s. Varasamt fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind. Fólk er hvatt til þess að sýna aðgát.“

Á föstudag gefur hæðin síðan eftir. Þá sækir svalara loft úr vestri að landinu með skúrum en síðar éljum á vesturhluta landsins.

„Áfram helst þó að mestu þurrt og hlýtt fyrir austan. Annars breytilegt veður um helgina, úrkomusamt á köflum og hitasveiflur,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.

Veðurhorfur á landinu:

Suðlæg átt, víða 8-15 m/s og dálítil rigning eða súld, en 15-23 m/s á norðanverðu Snæfellsnesi fram á nótt. Skýjað, en þurrt að mestu á N- og A-landi. Hiti 5 til 15 stig, hlýjast austanlands.

Á fimmtudag:

Sunnan og suðvestan 8-15 m/s og súld eða rigning en að yfirleitt bjartviðri á Norður- og Austurlandi. Hiti 6 til 14 stig, hlýjast austast.

Á föstudag:

Suðvestan 10-15 m/s og rigning í fyrstu, en síðar skúrir eða él. Heldur hægara og bjartviðri A-til og kólnandi veður.

Á laugardag (vorjafndægur):

Breytilegar áttir með slyddu eða rigningu í flestum landshlutum og hiti 1 til 6 stig.

Á sunnudag:

Stífar sunnan- og suðvestanáttir með rigningu í fyrstu, en síðar skúrum eða éljum. Lengst af þurrt norðaustanlands. Hiti 0 til 5 stig.

Á mánudag:

Útlit fyrir suðvestanátt með éljum, en léttskýjað eystra. Víða vægt frost.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×