Lífið

Aug­lýsti eftir þátta­stjórnanda í hlað­varp og um­sóknirnar dælast inn

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hugi Halldórsson leitar að þáttastjórnanda. 
Hugi Halldórsson leitar að þáttastjórnanda. 

„Viðbrögðin hafa verið vonum framar. Ég gerði mér ekki alveg grein fyrir áhuganum í fyrstu. Taldi að svona tímabundið starf ætti við fáa en áhugi á hlaðvarpsvellinum er greinilega töluverður,“ segir Hugi Halldórsson sem heldur úti hlaðvarpinu Rautt & Hvítt.

Hann auglýsti í vikunni eftir starfsmanni í vinnu á Alfreð.is. Þar er hann að leita að þáttastjórnanda í þáttinn sjálfan.

„Ég held áfram að hvetja alla þá sem telja sig getað haldið úti vinsælu hlaðvarpi að sækja um. Allir sem hafa áhuga á fólki eru hæfir í starfið og ekki skemmir ef viðkomandi hefur temmilega þekkingu á léttvíni,“ segir Hugi en þegar blaðamaður ræddi við hann höfði fimmtíu manns sótt um.

„Það kemur fram í auglýsingunni að viðkomandi þarf fyrst og fremst að hafa áhuga á fólki. Hæfileikinn til að semja góðar spurningar, allt frá þeim sem bjóða upp á skemmtileg svör og til leiðandi í áhugaverða og djúpa umræðu. Njóta þess að skapa gott og þægilegt andrúmsloft auk þess að geta haldið uppi áhugaverðu, fróðlegu og skemmtilegu spjalli.“

Þátturinn Rautt & Hvítt fjallar eins og gefur að skilja um léttvín. Í þáttunum fær Hugi til sín þjóðþekkta einstaklinga til að spjalla.

„Við spjöllum um það sem mér dettur í hug að spyrja. Suma af gestunum þekki ég mjög vel en aðra lítið sem ekki neitt. Margt áhugavert sem þjóðin vissi ekki um gestina hefur komið fram í þáttunum. Gestir og stjórnandinn bragða á góðum léttvínum og smakka ljúffenga osta, sultur, súkkulaði og ólífu olíur.“

Hann segist vera að leita eftir stjórnanda sem geti fengið til sín áhugavert fólk sem hefur sögur að segja.

„Það þarf ekki endilega að vera þjóðþekktir einstaklingar þótt það hafi verið tilfellið hjá mér í fyrstu tíu þáttunum. Þá skiptir mestu hæfileikinn í mannlegum samskiptum, sýna áhuga á frásögn og geta hlustað. Allir hafa sögu að segja en listin við að komast að kjarna frásagnar er kúnst sem ekki allir hafa.“

Hér að neðan má hlusta á einn þátt af Rautt & Hvítt þegar Patrekur Jaime og Bassi Maraj mættu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.