RAX kynntist Ole þegar hann fylgdi veiðimönnum eftir á hafísnum við Thule á Grænlandi.
„Ísinn var svolítið erfiður því það var svo lítill snjór á honum þannig að hundarnir verða sárfættir svo hann saumaði á þá skó,“ rifjar RAX upp í nýjasta þættinum af RAX Augnablik.
Ole var alltaf tilbúinn og á einni myndinni sem RAX tók bíður Ole tilbúinn fyrir veiði og náhvalur hafði sést nálægt þeim. Hann heldur á uppblásnum selsbelg og í hann er fast snæri og spjót.
Sjá hvert hvalirnir synda
„Þeir sauma saman selskinn og blása lofti í hann svo hann er alveg þéttur. Þegar þeir skutla hvalinn frá kajaknum að þá festist spjótið í hvalnum og línan dregst út,“ útskýrir RAX um þessa hefð veiðimannanna. Hvalurinn getur ekki kafað með selsbelginn og því geta veiðimennirnir elt hann fótgangandi á ísnum og svo skotið hann.
„Þeir sjá alltaf á yfirborðinu hvert hvalurinn er að synda.“
Selsbelgina nota þeir einnig til að veiða seli og ná þeim upp á yfirborðið, forvitnin verður þá þeirra banabiti. Hægt er að heyra frásögnina í heild sinni ásamt því að sjá fleiri ljósmyndir úr ferðinni í spilaranum hér fyrir neðan. RAX Augnablik eru örþættir og þátturinn Selsbelgurinn er tæpar fjórar mínútur.
Í tilefni af því að það byrjaði að gjósa í Geldingadal við Fagradalsfjall um helgina er viðeigandi að rifja upp frásögn RAX af eldgosinu í Holuhrauni árið 2014, sem margir segja að sé svipað gos.
Sagan af Ole og selsbelgnum er ekki fyrsta sagan hans RAX frá Grænlandi. Hér fyrir neðan má horfa á nokkrar vel valdar Grænlandssögur úr RAX Augnablik síðustu mánuði.
Kóngurinn í Thule
Sagan af því þegar RAX kynnist veiðimanninum Massana, sem var kallaður Kóngurinn í Thule, og fékk að fara með honum í margra daga veiðiferð. Í ferðinni heillaðist RAX af Massana og þeim frumstæðu lífsháttum sem veiðimennirnir stunda, og eru á undanhaldi.
Jökulstormur
Grænlendingar þurfa að búa við tíða jökulstorma sem þeir kalla Piteraq. Orðið Piteraq þýðir í raun „sá sem ræðst á þig“ og við fáum að kynnast því hvernig það er að láta ráðast á okkur í gegnum magnaðar myndir sem RAX hefur myndað í miðjum jökulstormi.
Í krumlu hafíssins
RAX eltir bræðurna Hjelmer og Ababa út á hafísinn til þess að reyna að veiða ísbjörn. Þeir eru í kapphlaupi við tímann því jökulstormur (Piteraq) stefnir í áttina að þeim.

Í þáttunum RAX AUGNABLIK segir ljósmyndarinn Ragnar Axelsson sögurnar á bak við margar af sínum þekktustu myndum. Ragnar hefur starfað á vettvangi í meira en fjörutíu ár og eru sögurnar hans ævintýralegar. Nýr þáttur kemur út á hverjum sunnudegi hér á Vísi og á Stöð 2+.
Hægt er að sjá alla þættina HÉR á Vísi.