Lífið

Elísabet Hulda lögð af stað í Miss Universe ævintýrið

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Elísabet Hulda á lokakvöldi Miss Universe Iceland og á svo á flugvellinum fyrr í dag. (Arnór Trausti tók myndina af henni í síðkjólnum)
Elísabet Hulda á lokakvöldi Miss Universe Iceland og á svo á flugvellinum fyrr í dag. (Arnór Trausti tók myndina af henni í síðkjólnum) Samsett

Elísabet Hulda Snorradóttir lagði í dag af stað til Bandaríkjanna þar sem hún mun keppa fyrir Íslands hönd í keppninni Miss Universe.

Elísabet Hulda var valin Miss Universe Iceland í október á síðasta ári og varð þannig fulltrúi okkar í þessari stóru keppni. 

„Ég er afskaplega spennt, tilhlökkunin er búin að vera svo svakalega mikil þar sem það var óljóst í svolítið langann tíma hvenær keppnin yrði haldin. Keppnin verður síðan loksins haldin núna 16. maí í Hollywood í Flórída. En ég er að fara fyrr til Bandaríkjanna til þess að undirbúa mig betur fyrir allt saman,“ sagði Elísabet Hulda í samtali við Vísi fyrir flugið sitt í dag.

„Ég þurfti að fá sérstakt leyfi frá Bandaríska sendiráðinu til þess að geta komist inn í landið. Ég fór einnig í skimum í fyrsta skiptið núna um daginn til þess að sína fram á neikvætt Covid próf, en það er aðeins gilt í 72 klukkutíma. Miss Universe er líka að undirbúa fyrir komu allra stelpnanna, en ég veit að það eru búin að vera mörg VISA vandamál. Ég var voða heppin og lenti ekki í neinum vandamálum.“

Elísabet Hulda vann Miss Universe Iceland í október á síðasta ári. Keppendur voru 15 talsins en ólíkt fyrri árum báru keppendur grímur sökum kórónuveirufaraldursins.

Fylgist vel með fréttum

Manuela Ósk Harðardóttir framkvæmdarstjóri keppninnar hér á landi stefnir á að fara út til Elísabetar Huldu í maí en þangað til verða meðeigendur hennar að Miss Universe íslensku fegurðardrottningunni til halds og traust, þar sem þeir eru búsettir í Bandaríkjunum. 

„Ég er búin að vinna voða mikið með sponserunum okkar í gegnum Zoom. Angelo Fraiser sem einkaþjálfarinn minn og er búinn að fylgja mér mikið í gegnum síðustu mánuðina með fjölbreyttar æfingar sem hann býr til sérstaklega fyrir mig sem er búið að vera æðislegt sérstaklega því að ég gat gert þetta allt bara heima og þurfti ekki að hafa áhyggjur yfir hvort ræktirnar væri opnar eða lokaðar. Síðan er ég einnig búin að vinna með Lisette sem er gönguþjálfarinn minn. Þar snýst þetta um að æfa göngulagið á hælunum, svipbrigði og að læra á möguleg myndavélasjónarhorn fyrir sjónvarpið. Ég myndi samt sem áður segja að stærsti undirbúningurinn felst í því að fylgjast vel með fréttum og vera viðstödd í nútímanum þar sem stór hluti í keppninni eru dómaraviðtölin og spurningar upp á sviði.“

Elísabet Hulda segist spennt að keppa fyrir Íslands hönd í Miss Universe.Arnór Trausti

Núna stendur yfir leit að keppendum fyrir Miss Universe Iceland 2021 og geta áhugasamir sent inn umsókn á vefsíðu keppninnar. Hægt verður að fylgjast með ævintýrum Elísabetar Huldu á Instagramminu hennar og Instagrammi Miss Universe Iceland.


Tengdar fréttir

Fegurðardrottning, gasgrímur og sérsveitin við gosið

Vilhelm Gunnarsson fréttaljósmyndari Vísis hefur farið nokkrar ferðir að eldgosinu í Geldingadölum þessa fyrstu viku eldgossins. Það hefur verið stöðug örtröð göngufólks að gosstöðvum og björgunarsveitarfólk hefur haft í nógu að snúast.

Elísabet Hulda vann Miss Universe Iceland

Elísabet Hulda Snorradóttir bar sigur úr býtum í Gamla Bíói í gærkvöldi þegar lokakeppni Miss Universe Iceland fór fram. Keppendur voru 15 talsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.