„Ég held að þetta sé áhrifaríkasta úrræðið ef við ætlum á annað borð að nota opinbert fé til að aðstoða fólk í atvinnuleit,“ segir Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnumálastofnunar. „Námsmenn hafa mjög góða reynslu af þessu.“
Hverjum nýjum námsmanni sem ráðinn er inn með úrræðinu fylgir styrkur sem nemur fullum dagvinnulaunum samkvæmt kjarasamningum eða í mesta lagi allt að 472 þúsund krónum á mánuði. Ráðningartímabilið er allt að tveir og hálfur mánuður.
Ráðist var í svipað átak í fyrra, þar sem fjárhæðin var minni, 2,2 milljarðar, en störfin fleiri, um 3.400. Unnur segir að þetta skýrist af því að nú séu launin hærri, bæði vegna ákvörðunar stjórnvalda og kjarasamningsbundinna hækkana sem hafa tekið gildi í millitíðinni.
Óvenjulega mikill fjöldi sumarstarfsmanna í fyrra
Allt stefndi í mikið atvinnuleysi hjá ungu fólki í fyrra eftir að heimsfaraldurinn var nýskollinn á, þannig að sögulegum fjárhæðum var veitt til Vinnumálastofnunar í þessu skyni.

Segja má að allt hafi verið morandi í sumarstarfsmönnum á háskólaaldri hjá hinum ýmsu opinberu stofnunum, allt frá Póst- og fjarskiptastofnun og Veðurstofunni til Árnastofnunar og Háskóla Íslands. Þá réðu sveitarfélögin einnig til sín fjölda fólks.
Í ár er að finna þau nýmæli í átakinu að frjálsum félagasamtökum er gert kleift að taka þátt. Þar gætu félög eins og skátafélög, trúarfélög, góðgerðafélög eða stéttarfélög hugsað sér gott til glóðarinnar og ráðið inn fólk á kostnað hins opinbera. Vinnumálastofnun er falið að skera úr um hver er gjaldgengur til slíks og segir forstjórinn að það mat standi yfir.
Frestur til að sækja um rann út 5. júní í fyrra enda var ráðist með litlum fyrirvara í átakið. Að sögn Unnar er stefnan að ljúka umsóknarferlinu mun fyrr á þessu ári. Hér er tilkynning Stjórnarráðsins.
Ætla má að ákvörðunin um að hafa störfin færri í ár en í fyrra grundvallist á því að í fyrra voru að minnsta kosti 500 störf sem stóðu út af eftir að umsóknum lauk. Við það tilefni sagði félagsmálaráðherra að ekki væri þörf á að skapa fleiri tímabundin störf það sumar en formaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands hefur gagnrýnt þann málflutning og sagt hann ekki vera til marks um góða stöðu stúdenta.