Þetta er í fyrsta sinn frá 18. mars þar sem enginn greinist innanlands.
Áttatíu eru nú í einangrun, samanborið við 83 í gær. 165 eru nú í sóttkví, en voru 199 í gær. 1.072 eru nú í skimunarsóttkví. Þá eru tveir nú á sjúkrahúsi vegna Covid-19.
Fimm greindust á landamærum – fjórir í fyrri landamæraskimun og einnmældist með mótefni.

Nýgengi á smiti innanlands, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur, er nú 12,3, en var 13,9 í gær. Nýgengi á smiti á landamærum er nú 6,5, en var 6,0 í gær.
28.281 eru nú fullbólusettir hér á landi og er bólusetning hafin hjá 38.877 til viðbótar.
Alls hafa 6.279 manns greinst með kórónuveiruna hér á landi frá því faraldurinn hófst í lok febrúar á síðasta ári. Þá hafa 29 dauðsföll verið rakin til Covid-19 á Íslandi frá upphafi faraldursins.

Alls voru tekin 688 einkennasýni hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans og Íslenskri erfðagreiningu í gær. Þá voru 507 sýni tekin á landamærunum eða í seinni landamæraskimun og 249 í svokallaðri sóttkvíar- og handahófsskimun.
Fréttin hefur verið uppfærð.