Innlent

Hundrað í skimun eftir að smitin voru rakin til mat­væla­fyrir­tækis

Sylvía Hall skrifar
Víðir Reynisson segir almenning ekki þurfa að hafa áhyggjur af því þó smitin hafi komið upp innan matvælafyrirtækis.
Víðir Reynisson segir almenning ekki þurfa að hafa áhyggjur af því þó smitin hafi komið upp innan matvælafyrirtækis. Vísir/Vilhelm

Verið er að skima hundrað starfsmenn matvælafyrirtækis eftir að tvö kórónuveirusmit sem greindust í gær voru rakin til þess. Smitin greindust utan sóttkvíar og eru tugir nú í sóttkví, sem gætu orðið fleiri ef fleiri reynast smitaðir.

RÚV greindi fyrst frá þar sem rætt er við Víði Reynisson yfirlögregluþjón. Hann segir smitrakningu hafa leitt í ljós tengsl milli smitanna, en starfsmennirnir sem nú fara í skimun vinna ekki allir á sama stað þó fyrirtækið hafi aðalsetur á höfuðborgarsvæðinu.

Enn sé óljóst hvernig smitin komu til þar sem sóttvarnir hafi verið í lagi að mestu leyti. Þó vilji þau ekki taka neina sénsa og því hafi verið ákveðið að skima svo marga starfsmenn. Almenningur þurfi þó ekki að hafa varann á þó um matvælafyrirtæki sé að ræða.

Í samtali við fréttastofu í dag sagði Víðir það þó vera áhyggjuefni hversu mörg smit hefðu greinst meðal einstaklinga sem ekki voru í sóttkví.

„Þetta eru orðin fimm smit núna á stuttum tíma sem eru utan sóttkvíar og það er, eins og við höfum alltaf talað um, áhyggjuefni en smitum auðvitað í heildina er að fara fækkandi og þetta er að ganga ágætlega hjá okkur. Það sem skiptir mestu máli núna er að við hugum vel að okkar persónubundnu sóttvörnum.“


Tengdar fréttir

Tugir þurfa í sóttkví vegna smitanna í gær

Tugir þurfa að fara í sóttkví í tengslum við þau tvö smit covid-19 sem greindust innanlands í gær. Víðir Reynisson minnir á mikilvægi þess að fólk fari í sýnatöku finni það fyrir minnstu einkennum og hvetur atvinnurekendur til að vera duglega til að miðla upplýsingum til erlends starfsfólks um hve auðvelt sé að komast að í sýnatöku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×