Kannski er yfirmaðurinn þinn á breytingaskeiðinu sínu (á líka við karlmenn) Rakel Sveinsdóttir skrifar 21. maí 2021 07:00 Að fara í gegnum breytingaskeiðið getur lýst sér í alls kyns einkennum sem fólk er kannski ekkert að segja frá, en hefur áhrif á það hvernig okkur líður í vinnunni. Er kominn tími til að opna umræðuna um þessa staðreynd? Vísir/Getty Að tala um breytingaskeiðið fer oftast fram í frekar lokuðum hópum. Kannski hjá bestu vinkonum. Hjá hjónum. Hjá lækninum. Sjaldnast meðal karlmanna, en þó: Það kemur fyrir. Hjá báðum kynjum oft í gríni eða sem einhvers konar djók.
En breytingaskeiðið er reyndar ekkert djók. Það er alveg þrælflókið fyrirbrigði. Og á við bæði kynin því það eru alls ekki bara konur sem fara í gegnum breytingaskeiðið. Karlmenn gera það líka. Upplifunin og einkennin geta hins vegar verið mjög ólík á milli einstaklinga og kynja. Í grein Harvard Business Review (HBR) er á það bent að breytingaskeiðið byrjar oftast hjá fólki þegar það er á aldrinum 45-55 ára. Sem þýðir að á vinnumarkaði er stór hópur fólks að ganga í gegnum þetta ferli. Og margt fólk jafnvel á hátindi starfsframans. Í góðum stöðugildum, jafnvel æðstu stjórnendastörfunum. En getur það að fara í gegnum breytingaskeiðið haft áhrif á okkur í vinnunni? Já vissulega. Því breytingaskeiðinu geta fylgt alls kyns tilfinningaleg og líkamleg einkenni. Allt frá kvíða eða þunglyndi yfir í svefntruflanir. Sem vissulega getur haft áhrif á það hvernig dagsformið okkar er. Og hugsa sér: Þetta tímabil er sagt geta staðið yfir í 7-14 ár! Karlmenn geta upplifað alls kyns tilfinningar og líkamleg einkenni á sínu breytingaskeiði. Allt frá efasemdum um sjálfan sig og aukið eða óvænt sjálfsóöryggi, minni kynhvöt og erfiðleikar með stinningu. Allt getur þetta haft áhrif á það hvernig þeim líður, líka í vinnunni. Er kominn tími til að opna á þessa umræðu?Vísir/Getty Það er oftar og meira rætt um breytingaskeið kvenna. En fáir gera sér kannski grein fyrir því hvað nákvæmlega konur á breytingaskeiði eru að glíma við og hvernig sú upplifun getur verið að hafa áhrif á þær í vinnunni. Það sama gæti reyndar verið að gerast hjá karlmanni. Einkenni breytingaskeiðs karla getur til dæmis lýst sér í aukinni fitumyndun, minni kynhvöt eða erfiðleikum við stinningu. Þetta eru ekki beint auðveld viðfangsefni að glíma við. Þannig að já, auðvitað getur breytingaskeiðið haft áhrif á það hvernig okkur líður í vinnunni og hvernig okkur tekst frammistaðan. Almennt tengjum við þó ekki atvinnulífið neitt við breytingaskeið. Okkur finnst eðlilegt að vita af óléttu, barnsfæðingum og fæðingarorlofi. Sem er einmitt mikil reynsla að fara í gegnum um. En ræðum breytingaskeiðið ekkert. Þó segir í grein HBR að rannsóknir bendi sumar til þess að sumir vinnustaðir forðist að ráða konur á vissum aldri til starfa, meðal annars vegna þess að breytingarskeiðstímabilið getur reynst konum svo „flókinn og erfiður“ tími. Enda ekkert skrýtið. Þegar konur ganga með barn er ekkert mál að ræða það opinskátt hvernig þeim líður. Fólk spyr og hefur meira að segja áhuga á að heyra hvernig gengur. En breytingaskeiðið?! Nei, nokkuð öruggt að það eru fáir sem opna sig um þá umræðu á vinnustað. Sem getur verið erfitt því þar með upplifir þessi hópur starfsfólks sig einangrað og án stuðnings. Enda þekking samstarfsfélaga lítil og oft engin. Mögulega gæti þetta þó breyst í framtíðinni. Til dæmis segir HBR frá konu í sinni grein, starfar sem ráðgjafi fyrir vinnustaði sem vilja efla fjölbreytileika í vinnustaðamenningu og ráðningum starfsfólks. Í þeim efnum er ekki aðeins tekið tillit til aldurs, kyns, kynhneigðar, trúar, þjóðernis og svo framvegis, heldur einnig það að viss hópur starfsfólks er á þeim aldri að mjög líklega er viðkomandi starfsmaður að fást við einhver einkenni breytingaskeiðsins. Til dæmis með því að opna umræðuna og efla meðvitund vinnustaða og samstarfsteyma um að breytingarskeiðið er eitt af staðreyndum lífsins. Þótt við séum ekkert endilega að opinbera það. En það að átta sig á því að það er til staðar, getur strax verið framfaraskref og gert okkur betri í að skilja hvort annað og sýna samkennd. Er framkvæmdastjórinn þinn eða einhver annar samstarfsfélagi að sýna einkenni breytingaskeiðsins? Ef já, í hverju felast þau einkenni? Getur þú sett þig í hans/hennar spor? Hvað veistu um einkenni breytingaskeiðs karla og kvenna?
Góðu ráðin Vinnustaðamenning Vinnustaðurinn Vinnumarkaður Stjórnun Heilsa Tengdar fréttir Einkenni algengra aldursfordóma á vinnustöðum Aldursfordómar hafa orðið nokkuð undir í umræðum síðustu ára um fordóma á vinnustöðum og forvarnir gegn þeim. Meira er rætt um aðgerðir og forvarnir gegn kynfordómum, kynvitund, kynhneigð, þjóðerni og trú. 8. desember 2020 07:00 Einkenni og afleiðingar fitufordóma á vinnustöðum Getur verið að þú haldir um margt fólk í ofþyngd að það séu hálfgerðir letingjar? Eða að viðkomandi sé ekkert rosalega klár? Ertu með yfirlýsingar um að fólk í ofþyngd sé með litla sjálfstjórn og almennt ekki hraust? Finnst þér fólk í ofþyngd minna spennandi í ásýnd og útliti? 16. desember 2020 07:01 Sjálfsmyndin oft erfið stjórnendum og hálauna fólki Kanntu að gera skil á milli þín og vinnunnar? Eða byggir sjálfsmatið þitt á stöðugildinu sem þú sinnir í dag? Að starfsferillinn hafi í raun yfirtekið sjálfsmyndina er staða sem margir eru í, en oft óafvitandi. 12. febrúar 2021 07:01 Á sextugsaldri í atvinnuleit: Þrjú góð ráð Fólk á sextugsaldri í atvinnuleit þarf að gæta þess að ferilskráin þeirra sé ekki lengri en ein til tvær A4 síður þótt starfsreynslan sé mikil. Þá er um að gera að nýta sér samfélagsmiðlana eins og unga fólkið gerir. 24. ágúst 2020 09:00 Mest lesið Opna baðstað í Kerlingarfjöllum um helgina Viðskipti innlent Svekkjandi uppgjör og aðstoðarforstjórinn látinn róa Viðskipti innlent Ómar fær fyrir ferðina Neytendur Arion banki greiði Seðlabankanum 585 milljónir Viðskipti innlent Betra en ekki að viðurkenna mistökin Atvinnulíf Senda tækið til útlanda til skoðunar og vilja endurgreiða Steinunni Neytendur Sjálfbærniskólinn opnar: Reglugerðin mun líka hafa áhrif á lítil og meðalstór fyrirtæki Atvinnulíf Sex fyrirtæki sektuð vegna nikotínauglýsinga Neytendur Sjálfbærniskólinn: Mörg fyrirtæki að gera geggjað góða hluti án þess að átta sig á því Atvinnulíf Verðskrá Lufthansa hækkar vegna nýs umhverfisgjalds Neytendur Fleiri fréttir Betra en ekki að viðurkenna mistökin Sjálfbærniskólinn: Mörg fyrirtæki að gera geggjað góða hluti án þess að átta sig á því Sjálfbærniskólinn opnar: Reglugerðin mun líka hafa áhrif á lítil og meðalstór fyrirtæki Hafa þróað kerfi til að auka á gagnsæi viðskipta með kolefniseiningar „Hef ítrekað verið ásakaður af eiginkonunni að vera morgunfúll“ Óöryggi, feimni og jafnvel einmanaleiki í nýju sumarvinnunni Hámarkstími fullorðinna í símanum og góð ráð „Krakkar sem gistu hjá okkur vissu ekki hvað var að gerast!“ Níu manns sagt upp hjá Veitum Leiðtogakulnun: Þegar yfirmaðurinn er alveg búinn á því Að sækja um starf eftir uppsögn Hefur óeðlilega þörf fyrir að strauja allt frá skyrtum í barnasamfellur Að standa upp til að gera eitthvað og muna síðan ekkert hvað það var „Orðið var við aukna umræðu um að vinnan eigi ekki að valda álagi“ Ekkert einkamál: Áhrif vinnustaða á geðheilsu jafn stór og makans „Þú varst aumingi ef þú fórst á hausinn en glæpamaður ef þú græddir“ „Katrín Olga, þetta er eingöngu hálftími af þínu lífi“ Að gera ekki algeng mistök sem stjórnandi í fyrsta sinn „Ég nenni ekki að standa í einhverju veseni“ „Hann eyðileggur alltaf alla stemningu um leið og hann kemur“ „Ég einfaldlega spurði kennarann: Ertu ekki að djóka?!“ Vopnfirska kjötsúpan stoltið hjá efnahagsráðgjafa ríkistjórnarinnar „Oft sömu aðilar og verða öskureiðir ef þú rangkynjar köttinn þeirra eða hundinn“ „Ég var pæja sem vildi ekki vera með ljótan gulan hatt á hausnum“ „Svo hefst kapphlaupið í það hver er fyrstur að ná sturtunni!“ Fyrirtæki hvött til að halda upp á daginn í dag og gera sér dagamun Snillingur í útlöndum: „Þegar vinirnir keyptu sér nammi keypti ég mér diskókúlur“ „Í dag fæ ég næstum því bara hrós við matarborðið“ Svona getur þú sagt Nei í vinnunni án þess að fá samviskubit Að endurskapa ásýndina á að vera skemmtileg vinna en ekki kvöð Sjá meira
Einkenni algengra aldursfordóma á vinnustöðum Aldursfordómar hafa orðið nokkuð undir í umræðum síðustu ára um fordóma á vinnustöðum og forvarnir gegn þeim. Meira er rætt um aðgerðir og forvarnir gegn kynfordómum, kynvitund, kynhneigð, þjóðerni og trú. 8. desember 2020 07:00
Einkenni og afleiðingar fitufordóma á vinnustöðum Getur verið að þú haldir um margt fólk í ofþyngd að það séu hálfgerðir letingjar? Eða að viðkomandi sé ekkert rosalega klár? Ertu með yfirlýsingar um að fólk í ofþyngd sé með litla sjálfstjórn og almennt ekki hraust? Finnst þér fólk í ofþyngd minna spennandi í ásýnd og útliti? 16. desember 2020 07:01
Sjálfsmyndin oft erfið stjórnendum og hálauna fólki Kanntu að gera skil á milli þín og vinnunnar? Eða byggir sjálfsmatið þitt á stöðugildinu sem þú sinnir í dag? Að starfsferillinn hafi í raun yfirtekið sjálfsmyndina er staða sem margir eru í, en oft óafvitandi. 12. febrúar 2021 07:01
Á sextugsaldri í atvinnuleit: Þrjú góð ráð Fólk á sextugsaldri í atvinnuleit þarf að gæta þess að ferilskráin þeirra sé ekki lengri en ein til tvær A4 síður þótt starfsreynslan sé mikil. Þá er um að gera að nýta sér samfélagsmiðlana eins og unga fólkið gerir. 24. ágúst 2020 09:00
Sjálfbærniskólinn opnar: Reglugerðin mun líka hafa áhrif á lítil og meðalstór fyrirtæki Atvinnulíf
Sjálfbærniskólinn opnar: Reglugerðin mun líka hafa áhrif á lítil og meðalstór fyrirtæki Atvinnulíf