Það eru Frakkland, Holland, Pólland og Ungverjaland en þetta er sagt með fyrirvara um að frumvarp heilbrigðisráðherra verði samþykkt.
Stjórnvöld hafa boðað lagabreytingu sem kveður á um að farþegar frá löndum með yfir 1.000 í nýgengi þurfi allir undantekningarlaust að fara á sóttkvíarhótel við komuna til landsins.
Nýgengi smita Covid-19 hefur ekki í neinu ríki heims verið að meðaltali yfir 1.000 á 100.000 íbúa síðustu tvær vikur, en á vissum svæðum innan vissra ríkja hefur nýgengið náð yfir þetta mark. Þegar þetta nær yfir 1.000 einhvers staðar í tilteknu landi, er landið þar með komið í mesta áhættuflokk.
Hið versta verður þannig látið yfir allt landið ganga þegar ástandið er metið í hverju landi.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra sagði fyrr í dag að undir þennan flokk féllu fyrrnefnd fjögur lönd.
Fyrir langflesta farþega heims gildir að aðeins er litið á dvöl á sóttkvíarhóteli sem „meginreglu.“ Undanþága mun veitt þeim sem sýnt geta fram á að fyrir liggi „trúverðug áform um dvöl í fullnægjandi húsnæði.“
Skilyrðislaus skyldudvöl á sóttkvíarhóteli er því ekki í gildi fyrir farþega frá neinu ríki heims nema Frakklandi, Hollandi, Póllandi og Ungverjalandi.
Reglurnar óbreyttar fyrir langflesta
Það hefur aðeins örsjaldan gerst í heiminum að nýgengi heils lands fari yfir 1.000 smit á hverja 100.000 á tveimur vikum. Það hefur ekki einu sinni gerst í Bandaríkjunum eða Brasilíu. Öðru máli gegnir um einstök svæði innan ríkja, en hér á landi verður nú miðað við slíka tölfræði.
Næsti flokkur eru 750 smit á hverja 100.000 íbúa síðustu tvær vikur. Þar verður farþegum samkvæmt stjórnvöldum „skylt“ að fara á sóttkvíarhótel. Þeir geta þó vandræðalaust sótt um undanþágu til að fara í sóttkví heima hjá sér.
Fyrir langflesta íbúa heims sem hingað vilja koma eru reglurnar óbreyttar hér á landi. Ef nýgengið er minna en 750 er áfram valkvætt að dvelja á sóttvarnarhóteli.
Sjá má nýgengi í ríkjum Evrópu hér en á veraldarvísu hér.