Innlent

Far­þegar frá fleiri löndum skyldaðir í sótt­varna­hús en fram hefur komið

Eiður Þór Árnason skrifar
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir. Vísir/Sigurjón

Sóttvarnalæknir hefur birt lista yfir þau ríki sem myndu að óbreyttu falla undir fyrirhugaða heimild stjórnvalda til að skylda farþega til dvalar í sóttvarnahúsi við komuna til landsins. Samkvæmt matinu myndi heimildin í dag ná til farþega frá átta löndum.

Þetta eru Holland, Frakkland, Pólland og Ungverjalandi, Bermúda, Curaco, San Marínó og Úrúgvæ, að því er fram kemur á vef landlæknisembættisins. Áður hafði komið fram að þau fjögur fyrstnefndu myndu falla undir skilyrðið. 

Í því frumvarpi sem er nú til umræðu á Alþingi er miðað við að hægt verði að skylda farþega í sóttvarnahús frá löndum þar sem fjöldi nýrra kórónuveirusmita er yfir 1.000 á hverja 100.000 íbúa á fjórtán daga tímabili. Þá er miðað við það svæði innan landsins þar sem nýgengi mælist hæst.

Farþegar frá ellefu ríkjum gætu sótt um undanþágu

Einnig er gert ráð fyrir að farþegar frá tilteknum ríkjum þurfi að meginreglu að dvelja í sóttvarnahúsi en geti sótt um undanþágu sé sýnt fram á að þeir uppfylli öll skilyrði sóttkvíar í eigin húsnæði. Samkvæmt lista sóttvarnalæknis myndu ellefu lönd falla undir það skilyrði í dag. 

Þar er um að ræða Andorra, Barein, Króatíu, Kýpur, Eistland, Ítalíu, Litháen, Jórdaníu, Serbíu, Svíþjóð og Tyrkland en í þeim löndum mælist fjórtán daga nýgengi á hverja 100.000 íbúa á bilinu 750 til 1.000 smit.

Reiknað er með að umrætt lagafrumvarp verði samþykkt á Alþingi síðar í dag. Samkvæmt því verður heimild stjórnvalda til að skikka farþega í sóttvarnahús tímabundin og gilda til og með 30. júní næstkomandi. Málið er enn til umfjöllunar á þinginu og gætu áðurnefnd viðmið því breyst og fjöldi þeirra ríkja sem falla undir þau þar með.

Fréttin hefur verið uppfærð.


Tengdar fréttir

Flokkur fólksins vill enn harðari reglur á landamærum

Þingflokkur Flokks fólksins leggur fram breytingartillögur við sóttvarnafrumvarp ríkisstjórnarinnar sem fela í sér að allir ferðamenn sem koma til landsins skuli dvelja í sóttvarnarhúsi eigi skemur en í sjö daga frá komu til lands og greiði sjálfir fyrir dvöl í sóttvarnarhúsi.

Breytingar á sóttvarnalögum verða væntanlega að lögum í dag

Reiknað er með að frumvarp ríkisstjórnarinnar um hertari sóttvarnaaðgerðir á landamærunum verði afgreitt sem lög frá Alþingi í dag. Samkvæmt því verður yfrvöldum veitt tímabundin heimild til að skylda tiltekna hópa ferðamanna í sóttkví í sóttvarnahúsi eða meina fólki alveg að koma til landsins.

Sóttu að Bjarna og skilja ekkert í breyttum viðmiðum

Hart var sótt að Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra á Alþingi í dag þegar þingmenn mættu í pontu hver á fætur öðrum og sögðu að blaðamannafundur ríkisstjórnarinnar í gær um ráðstafanir á landamærunum hefði verið illskiljanlegur.

Hverjar verða breytingarnar við landamærin?

Heilbrigðisráðherra hefur kynnt öllum þingflokkum frumvarp sem lagt verður fram á Alþingi í fyrramálið, þar sem lögð er til undantekningarlaus skyldudvöl á sóttkvíarhóteli fyrir afmarkaðan hóp komufarþega við landamærin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×