Skoðun

Takk Bubbi og Ásgeir

Halldóra Mogensen skrifar

Baráttunni gegn spillingu hefur borist góður liðsauki á síðustu dögum. Hundruð ef ekki þúsund Íslendinga hafa krafist aðgerða og úrbóta, að stjórnvöld taki á spillingu á Íslandi af festu og hrifsi völdin úr höndum fjársterkra hagsmunahópa. Ákallið að undanförnu má kannski hvað helst rekja til tveggja manna: tónlistarmannsins Bubba Morthens og Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra. Þó þeir séu um margt ólíkir eiga þeir að minnsta kosti eitt sameiginlegt: Þeim líst ekkert á stöðuna.

Báðir hafa þeir tjáð sig um framferði útgerðarfélagsins Samherja að undanförnu, hvorugur undir jákvæðum formerkjum. Bubbi gagnrýnir aðför fyrirtækisins að Ríkisútvarpinu og Ásgeir gagnrýnir aðför þess gegn starfsmönnum Seðlabankans. Í samtali við Stundina segir seðlabankastjóri enn fremur að Íslandi sé „að miklu leyti stjórnað af hagsmunahópum” og það sé „meiri háttar mál að lenda uppi á kant við þá.“

Ummælin hafa vakið verðskuldaða athygli, enda ekki á hverjum degi sem einn æðsti embættismaður þjóðarinnar tjáir sig með jafn opinskáum hætti. Ekki á hverjum degi sem hulunni er flett af átökunum bakvið tjöldin í efstu lögum samfélagsins. Ummæli seðlabankastjóra og Bubba hafa blásið baráttunni gegn spillingu byr undir báða vængi - og fyrir það erum við Píratar gríðarlega þakklátir.

Engin endurreisn án uppgjörs 

Endurreisn Íslands eftir faraldurinn verður ekki farsæl nema sérhagsmunaöfl sleppi krumlunum af íslensku samfélagi. Sérhagsmunaöflin sem hafa sannfært stjórnvöld um að hunsa niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslu um nýja stjórnarskrá, því hún kveður á um að auðlindir landsins séu í eigu þjóðarinnar. Það munu þau aldrei gera sjálfviljug og þess vegna þarf stjórnmálafólk sem vill taka á spillingu af festu. Sem vill koma í veg fyrir að einstaka fjölskyldur og fyrirtæki geti í krafti gríðarlegs auðs beygt stjórnvöld undir vilja sinn.

Á þessum grunni voru Píratar stofnaðir árið 2013. Baráttan gegn fjársterkum hagsmunaöflum, samþjöppun valds og spillingu er í erfðaefni flokksins.

Það er ekki hvað síst af þeim sökum sem Píratar hafa undanfarna 18 mánuði, frá birtingu Samherjaskjalanna um framgöngu fyrirtækisins í Namibíu, látið að sér kveða. Hér verður stiklað á stóru um það sem Píratar hafa gert á þingi í tengslum við Samherjamálið og margþætta gagnrýni flokksins í garð ríkisstjórnarinnar, sem hefur leyft framgöngu fyrirtækisins að viðgangast.

Rannsókn Pírata á sjávarútvegsráðherra stöðvuð

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir hafði frumkvæði að því að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd rannsakaði hæfi sjávarútvegsráðherra í ljósi sterkra tengsla hans við Samherja í kjölfar Samherjaskjalanna, þar sem forkólfar Samherja töluðu um hann sem „sinn mann“ í ríkisstjórninni og upplýsingar lágu fyrir um bein samskipti ráðherrans við þá í kjölfar Samherjaskjalanna.

Blásið var til opins fundar í stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, undir stjórn Pírata, þar sem ráðherra sat fyrir svörum. Í desember 2019 og í mars 2020 sendi nefndin ítarlegar upplýsingabeiðnir um störf ráðherrans fyrir Samherja, fjárstuðning fyrirtækisins við framboð hans og aðgerðir hans sem ráðherra í þágu Samherja. Talsverðar upplýsingar lágu fyrir sem bentu enda til þess að Kristján Þór væri vanhæfur sem sjávarútvegsráðherra.

Að endingu ákváðu ríkisstjórnarflokkarnir að stöðva rannsóknina sem Píratar hófu með afli og lýsti því yfir að ekkert væri athugavert við stjórnarhætti síns ráðherra. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir sagði í kjölfarið af sér sem formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar í mótmælaskyni og til að geta upplýst um það sem væri í gangi innan nefndarinnar.

Ítrekaðar ræður, spurningar og gagnrýni

Þess utan hafa þingmenn Pírata ítrekað fjallað um og gagnrýnt framgöngu Samherja í ræðum sínum. Athugið að þetta er ekki tæmandi upptalning:

Píratar hafa alltaf og munu alltaf berjast gegn spillingu. Píratar hafa alltaf og munu alltaf gagnrýna spillingu þegar hún verður á vegi þeirra og það verður ekki þaggað niður í þeim um Samherjamálið eins og þessi fjölmörgu dæmi sanna.

Höfundur er þingmaður Pírata



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Sjá meira


×