Innlent

Sex greindust innan­­lands og einn utan sótt­kvíar

Atli Ísleifsson skrifar
Alls hafa um 6.500 manns greinst með kórónuveiruna hér á landi frá upphafi faraldursins.
Alls hafa um 6.500 manns greinst með kórónuveiruna hér á landi frá upphafi faraldursins. Vísir/Vilhelm

Sex greindust með kórónuveiruna innan­lands í gær. Einn greindist utan sóttkvíar. Um er að ræða fyrsta smitið sem greinist utan sóttkvíar hér á landi frá 28. apríl.

Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á síðunni Covid.is.

167 eru nú í einangrun, en voru 174 í gær. 456 eru nú í sóttkví, en voru 496 í gær. 1.108 eru nú í skimunarsóttkví. Þá eru fimm nú á sjúkrahúsi vegna Covid-19, sami fjöldi og í gær.

Þrjú smit greindust á landamærum í gær. Tveir greindust í fyrri landamæraskimun og einn mældist með mótefni.

Nýgengi á smiti innanlands, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur, er nú 35,7, en var 39,8 í gær. Nýgengi á smiti á landamærum er nú 2,7, en var 2,2 í gær.

36.376 eru nú fullbólusettir hér á landi og er bólusetning hafin hjá 73.823 til viðbótar.

Alls voru tekin 1.086 einkennasýni hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans og Íslenskri erfðagreiningu í gær. Þá voru 448 sýni tekin á landamærunum eða í seinni landamæraskimun og 226 í svokallaðri sóttkvíar- og handahófsskimun. Þá voru 310 sýni tekin í annarri skimun hjá Íslenskri erfðagreiningu.

Fréttin hefur verið uppfærð. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×