Dómstóllinn í Nanterre, sem er að finna í úthverfi höfuðborgarinnar Parísar, taldi að Le Pen hafi ekki brotið lög þegar hún birti myndir af ódæðisverkum liðsmanna hryðjuverkasamtakanna ISIS á Twitter árið 2015.
Le Pen birti myndirnar í kjölfar hryðjuverkaárásanna í París þar sem íslamskir hryðjuverkamenn drápu 130 manns í röð árása. Var um að ræða þrjár myndir sem Le Pen birti, þar á meðal mynd af líki bandaríska blaðamannsins James Foley sem hryðjuverkamenn höfðu afhöfðað.
Le Pen hélt fram sakleysi sínu, en saksóknarar höfðu farið fram á að hún yrði dæmd til greiðslu fimm þúsund evra sektar, um 750 þúsund króna. Í ákæru var hún sökuð um að hafa brotið lög þar sem kveðið er á um að bannað sé að miðla ofbeldisskilaboðum sem talin séu geta skaðað mannlega reisn.
Le Pen, sem mun líklega bjóða sig fram gegn Emmanuel Macron í frönsku forsetakosningunum á næsta ári, sagði dómsmálið sprottið undan rifjum pólitískra andstæðinga sinna.