Hermenn sendir til að hefta flæði fólks yfir landamærin í Ceuta Samúel Karl Ólason skrifar 18. maí 2021 21:01 Þúsundir manna hafa farið frá Marokkó til Ceuta á síðustu dögum. Fólkið hefur synt eða gengið yfir á fjöru. AP/Bernat Armangue Yfirvöld á Spáni hafa sent hermenn til Ceuta, yfirráðasvæði Spánar í Norður-Afríku eftir að metfjöldi flótta- og farandfólks kom þangað. Ráðamenn í Ceuta segja minnst sex þúsund manns hafa komið á svæðið frá Marokkó í dag.
Fólkið, þar af um 1.500 börn, synti fram hjá landamæragirðingum á svæðinu eða gekk yfir á fjöru, samkvæmt frétt BBC. Minnst einn hefur dáið við að reyna að komast til Ceuta. Landamæraverðir í Marokkó eru sagðir hafa setið hjá og ekkert gert til að reyna að stöðva fólkið. Pedro Sánchez, forsætisráðherra Spánar, hefur heitið því að ná aftur röð og reglu í Ceuta og er þegar búið að senda um 2.700 manns aftur til Marokkó. Þó ekki þá sem eru ólögráða. Spænskir hermenn takast á við fólk sem hafði farið ólöglega inn á yfirráðasvæði Spánar í Norður-Afríku.AP/Bernat Armangue Um tvö hundruð hermenn og tvö hundruð lögregluþjóna hafa verið sendir til aðstoðar við um 1.100 landamæraverði í Ceuta, þar sem um 80 þúsund manns búa. El Pais segir flesta af þeim um átta þúsund manns sem hafi komið til Ceuta í dag og í gær vera frá Afríku, sunnan Sahara-eyðimerkurinnar. BBC segir þá hins vegar vera frá Marokkó. Ceuta og Melilla, sem er einnig yfirráðasvæði Spánar í Norður-Afríku hafa dregið að sér mikinn fjölda farand- og flóttafólks frá Afríku. Táragasi hefur verið beitt á landamærunum.AP/Bernat Armangue
Spánn Marokkó Flóttamenn Mest lesið Ferðamaður sofnaði undir stýri og ók á rútu Innlent Óður hundur réðst á tvo í Grafarvogi Innlent „Fólk er einfaldlega hrætt“ Erlent „Ástæða til að hafa áhyggjur“ Erlent Vöknuðu á floti og stigu út með drulluna upp að hnjám Erlent Hjólhýsi fauk af veginum í Borgarfirði Innlent Leitin að Slater blásin af Erlent „Ég mun ekki taka þátt í prófkjöri aftur“ Innlent Myndir frá eldsvoðanum í Húsafelli í nótt Innlent Fleiri foreldrar í vanda með máluppeldi en áður Innlent Fleiri fréttir „Ástæða til að hafa áhyggjur“ Franska þjóðfylkingin leiðir samkvæmt útgönguspám Vöknuðu á floti og stigu út með drulluna upp að hnjám „Fólk er einfaldlega hrætt“ Leitin að Slater blásin af Frakkar ganga að kjörborðinu Útlitið svart hjá Macron fyrir kosningar á morgun Bandarískum kjósendum líst illa á stöðuna í forsetaslagnum Ungur maður tekinn af lífi fyrir að hlusta á K-pop í Norður-Kóreu Efna til allsherjarleitar að Slater Mossack og Fonseca heitinn sýknaðir Segir Biden „algjörlega vanhæfan“ „Ég veit að ég er ekki ungur maður“ „Fíaskó næturinnar“ gæti kallað á nýjan frambjóðanda Ævilangt fangelsi fyrir morðið og nauðganirnar Biden augljóslega þyngdur af ellibelgnum Sakfelldur fyrir að myrða Emilie Meng Þakið á flugvelli í Nýju Delí hrundi vegna mikillar rigningar Biden hikandi og hás í fyrri kappræðum kosninganna Bein útsending: „Óvinsælustu frambjóðendur sem boðið hefur verið upp á“ Tilnefna Ursulu til að sitja fimm ár í viðbót Færeysku og grænlensku bætt við Google Translate Trump getur ekki gripið fram í fyrir Biden í nótt Krafa um hraða vaxtalækkun og Tækniskólinn rís í Hafnarfirði Fyrstu kappræðurnar í fjögur ár gætu skipt sköpum Eldur kviknaði í ráðuneyti Vill varúðarmerkingar á gjörunna matvöru Herforingi handtekinn eftir valdaránstilraun Valdaránstilraunin virðist hafa mistekist Segir hermennina hafa traðkað á skotsárum sínum Sjá meira