Fótbolti

Jónas hættur sem framkvæmdastjóri KR eftir hitafund

Valur Páll Eiríksson skrifar
Jónas hefur sagt upp eftir margra ára starf.
Jónas hefur sagt upp eftir margra ára starf. UMFÍ

Jónas Kristinsson sagði upp sem framkvæmdastjóri KR, stöðu sem hann hefur gegnt um árabil, í kjölfar aðalfundar félagsins á fimmtudag. Mikill hiti var á fundinum.

Gylfi Dalmann Aðalsteinsson, fráfarandi formaður KR, gaf ekki kost á sér til frekara kjörs og því ljóst að nýr maður myndi taka við. Kjörið stóð milli fyrrum körfuboltamannsins Páls Kolbeinssonar, sem hefur verið í stjórn félagsins og í körfuknattleiksdeild KR í mörg ár, og Lúðvíks Georgssonar. Lúðvík sat lengi vel í stjórn KR, sem og stjórn Knattspyrnusambands Íslands frá 1996 til 2014.

Sá síðarnefndi hafði betur í kjörinu og greinir Hjörvar Hafliðason frá því á Twitter-síðu sinni að Jónas hafi sagt upp vegna ósættis við niðurstöðu kjörsins.

KR hefur hvorki tilkynnt um kjör nýs formanns, né um afsögn Jónasar á sínum miðlum, en Vísir hefur fengið tíðindin staðfest. Þó hefur ekki hefur fengist staðfest að kjörið sé ástæða afsagnarinnar, líkt og Hjörvar vill meina.

Samkvæmt heimildum Vísis var aðalfundurinn þó erfiður og þar mikill hiti. Áhugavert verður að fylgjast með framhaldinu í Vesturbænum en ljóst er að fyrsta verk nýs formanns er að finna nýjan framkvæmdastjóra.

Ekki náðist í Jónas við gerð fréttarinnar. Hann er bróðir Rúnars Kristinssonar, þjálfara meistaraflokks karla hjá KR.

Uppfært 15:10: Jónas segir sögu Hjörvars uppspuna og að hann hafi engan stutt fram yfir annan. Að auki hafi hann sagt upp áður en fundurinn fór fram.

KR mætir FH í Pepsi Max-deild karla í fótbolta klukkan 16:00 í dag og hefst bein útsending frá Kaplakrika klukkan 15:30 á Stöð 2 Sport.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×