Innlent

Bólu­setning dugi ekki til að stöðva nú­verandi bylgju far­aldursins í Banda­ríkjunum

Eiður Þór Árnason skrifar
Anna Sigríður Islind og María Óskarsdóttir, lektorar við tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík.
Anna Sigríður Islind og María Óskarsdóttir, lektorar við tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík. HR

Yfirstandandi bólusetningar munu ekki duga til að stöðva núverandi bylgju kórónuveirufaraldursins í Bandaríkjunum að sögn vísindamanna. Nauðsynlegt er að viðhalda ströngum reglum um fjarlægð milli einstaklinga og öðrum sóttvarnarráðstöfunum til að stöðva faraldurinn og koma í veg fyrir nýja bylgju.

Þetta kemur fram í niðurstöðum rannsóknar vísindamanna við Háskólann í Reykjavík, Háskólann í Lyon, Háskóla Suður Danmerkur og Federico II Háskólann í Napolí, sem birtist í hinu virta vísindatímariti Nature Scientific Reports í dag. 

Um helmingur allra fullorðinna einstaklinga í Bandaríkjunum eru nú fullbólusettir gegn Covid-19 og er hlutfallið þar með því hæsta í heiminum. Nýjum tilfellum og andlátum hefur fækkað í Bandaríkjunum samhliða því en 24 þúsund staðfest smit greindust í gær og 543 létust vegna sjúkdómsins. Þá voru rúmlega 28 þúsund lagðir inn á sjúkrahús.

Notuðu gögn um flugumferð

Anna Sigríður Islind og María Óskarsdóttir, lektorar við tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík (HR), notuðu gögn um flugumferð til að greina framgang faraldursins þar í landi en í rannsókninni voru gögn um flugferðir innan Bandaríkjanna sett inn í stærðfræðilíkan sem smíðað var til að spá fyrir um framgang faraldursins. Frá þessu er greint í tilkynningu frá HR.

Gögnin eru sögð nýtast sem almennur mælikvarði á ferðalög og virkni fólks. Komu flugumferðargögnin frá OpenSky, samstarfsneti aðila í fluggeiranum sem hefur opnað fyrir aðgang vísindamanna að gögnum um flugumferð um allan heim.

Stærðfræðilíkanið, sem smíðað var af erlendum meðhöfundum greinarinnar, var áður notað til að spá fyrir um aðra bylgju faraldursins í Bandaríkjum. 

Það var prófað og stillt með raunupplýsingum um fyrstu bylgjuna og síðan matað með flugumferðargögnunum. Niðurstöðurnar sýndu að núverandi átak í bólusetningum mun eitt og sér hafa takmörkuð áhrif til að binda endi á yfirstandandi bylgju þar í landi.

Ónýtt tækifæri í notkun gagnanna

Anna og María sáu um þann hluta rannsóknarinnar sem laut að notkun og greiningu á flugumferðargögnunum. 

Þær segja að rannsóknin sýni mikilvægi þess að nota raunveruleg, áreiðanleg og reglulega uppfærð gögn um samgöngur í rannsóknum á framgangi faraldursins. Mikil tækifæri séu til að auka notkun slíkra gagna hér á landi til að auka áreiðanleika spálíkana um faraldurinn. Slík gögn geti líka nýst vel í mörgum öðrum tilgangi.

„Flugumferðagögnin eru sérstök að því leyti að þau ná til samgangna á milli ríkja og landa. Þau henta þess vegna mjög vel til að horfa á útbreiðslu faraldursins í stærra samhengi,“ er haft eftir þeim í tilkynningu.

„Við teljum líka að það séu mikil ónýtt tækifæri í notkun slíkra gagna almennt. Slík gögn geta til dæmis nýst vel við borgarskipulag og þá nefna Borgarlínu sérstaklega, í efnahagsrannsóknum og fleiru. Fyrirtæki og stofnanir sem búa yfir slíkum gögnum ættu að gera miklu meira af því að gera þau ópersónugreinanleg og opinber til rannsókna, til hagsbóta fyrir vísindin og samfélagið allt.“

Lesa má umrædda fræðigrein í Nature Scientific Reports.


Tengdar fréttir

Full­bólu­settir þurfa ekki að bera grímu

Samkvæmt nýjum tilmælum Sóttvarnastofnunar Bandaríkjanna (CDC) munu fullbólusettir ekki þurfa að bera grímu þegar tvær vikur eru liðnar frá seinni sprautu nema við mjög sérstakar aðstæður. Grímunotkun utandyra verður ekki skylda eftir bólusetningu og slakað verður á fjarlægðarmörkum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×