Innlent

Fimm greindust innan­­lands og tveir utan sótt­kvíar

Atli Ísleifsson skrifar
Tæplega 6.600 manns hafa nú greinst með kórónuveiruna hér á landi frá upphafi faraldursins í febrúar á síðasta ári.
Tæplega 6.600 manns hafa nú greinst með kórónuveiruna hér á landi frá upphafi faraldursins í febrúar á síðasta ári. Vísir/Vilhelm

Fimm greindust með kórónuveiruna innan­lands í gær. Þrír þeirra sem greindust voru í sóttkví, en tveir utan sóttkvíar.

Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á síðunni Covid.is.

41 er nú í einangrun, en voru 39 í gær. 341 eru nú í sóttkví, en voru 328 í gær. 1.427 eru nú í skimunarsóttkví. Einn er nú á sjúkrahúsi vegna Covid-19.

Fjórtán hafa nú greinst með kórónuveiruna innanlands síðustu fjóra sólarhringa. 

Einn greindist á landamærum í gær þar sem niðurstöðu mótefnamælingar beðið.

Nýgengi á smiti innanlands, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur, er nú 7,9, en var 7,1 í gær. Nýgengi á smiti á landamærum er nú 2,7, en var 3,0 í gær.

91.893 eru nú fullbólusettir hér á landi og er bólusetning hafin hjá 79.483 til viðbótar.

6.576 hafa nú greinst með kórónuveiruna hér á landi frá upphafi faraldursins í febrúar á síðasta ári. Af þeim sem greinst hafa með COVID-19 á Íslandi eru þrjátíu látin.

Alls voru tekin 807 einkennasýni hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans og Íslenskri erfðagreiningu í gær. Þá voru 1.550 sýni tekin á landamærunum eða í seinni landamæraskimun og 820 í svokallaðri sóttkvíar- og handahófsskimun.

Fréttin hefur verið uppfærð. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×